Lífsstílsþátturinn Maður og Heimili, í umsjón Sjöfn Þórðar, er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 19 og 21. Í kvöld heimsækir Sjöfn annars vegar Matkrána í Hveragerði og hins vegar Tryggvaskála á Selfossi.
Matkráin er í eigu þeirra Guðmundar Guðjónssonar og Jakobs Jakobssonar sem stofnuðu og ráku hið virta og margrómaða veitingahús Jómfrúna í Reykjavík í um það bil tuttugu ár í miklum blóma.
Þeir Guðmundur og Jakob eru fluttir í sveitina og njóta þess að nýta afurðir og uppskeru úr nærumhverfinu í matargerð sína og bakstur. Þeir seldu Jómfrúnna fyrir nokkrum árum og eftir fjögurra ára hlé í veitingabransanum, sumarið 2019, ákváðu þeir að byrja að nýju með því að innrétta og hanna veitingahús, Matkrána í hjarta blómabæjarins Hveragerðis.
„Matkráin er veitinga- og kaffihús með norrænar áherslur í mat og drykk. Einnig gætir skandinavískra áhrifa í innréttingum og eflaust líka í þeirri stemningu sem hér ríkir,“segja þeir Guðmundur og Jakob sem vita fátt skemmtilegra en að gleðja viðskiptavini sína með ljúffengum kræsingum og góðri þjónustulund.
Smurbrauðs- og matargerð þeirra er byggð á norrænum hefðum úr íslensku gæðahráefni. Það má með sanni segja að Guðmundur og Jakob hafi síðast liðin 25 árin verið ötulir við að kynna ekki síst danskar hefðir í mat og drykk saman ber rauðsprettu á brauði, purusteik, jólaplattann fræga að ógleymdri hinni heilugu þrenningu: smurbrauð, öl og snaps.
En þeir lumma á fleiri leyndardómum og blómstrar nú sem aldrei fyrr í matargerðinni og framreiðslu á nýjungum sem verða til heima í eldhúsinu þeirra í sveitinni. Sjöfn fær þá til svipta hulunni af nokkrum þeirra.
Tryggvaskáli er elsta hús Selfoss og er saga þess samofin bænum hvort sem litið er til sögu hans eða umhverfis og er hann kennileiti fyrir bæjarstæði. Skálinn var reistur árið 1890 sem skáli fyrir brúarsmíðina fyrir forgöngu Tryggva Gunnarssonar og er við hann kenndur. Árið 1901 hófst veitingarekstur í húsinu og þar var einnig rekið gistiheimili. Húsið var fyrst stækkað með viðbyggingu árið 1902 og síðan hefur margoft verið byggt við Tryggvaskála, síðast árið 1934. Það er því ánægjulegt að sjá að 120 árum síðar er enn veitingarekstur í skálanum og matar- og menningarlífið blómstrar í Tryggvaskála sem aldrei fyrr. Þeir Tómas Þóroddsson veitingamaður og Ívar Þór Elíasson matreiðslumaður tóku við rekstri skálans ásamt Margréti Rán Guðjónsdóttur, í maí síðastliðnum. Sjöfn heimsækir þá félaga og fær söguna bak við tilurð þess þeir ákváðu að fara í þennan rekstur saman og tækifærin sem þeir sjá í rekstrinum.
„Það er nú skondin saga að segja frá því hvernig leiðir okkar lágu saman í þennan rekstur,“ segir Ívar og glottir. Þeir félagar hafa auðgað bæjarlífið með opnun staðarins að nýju þar sem menningarlífið fær líka að njóta sín í skálanum. „Við höfum gert töluverðar breytingar í matargerðinni og því sem við erum að bjóða uppá. Við breyttum þó ekki mikið hér inni enda húsið friðað og mikil saga sem fylgir húsinu. Við leggjum áherslu á að andrúmsloftið sé hlýlegt og stemning létt og skemmtileg,“segir Tómas.
„Matargerðin hefur breyst og meira lagt upp úr að hægt sé að koma og fá sér drykk og eitthvað létt að borða en að sjálfsögðum bjóðum við áfram uppá steikur og fiskrétti,“segir Ívar sem er yfirkokkur staðarins og nýtur sín allra best í eldhúsinu við að töfrar fram kræsingar fyrir matargesti.
Sem fyrr segir er þátturinn á dagskrá Hringbrautar kl. 19 og 21 í kvöld.