fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Scott Disick er að „missa vitið“ yfir trúlofun Kourtney Kardashian

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 19. október 2021 09:19

Scott Disick er miður sín yfir trúlofuninni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raunveruleikastjarnan Scott Disick virðist vera að eiga erfitt með að fyrrverandi kærasta hans og barnsmóðir, Kourtney Kardashian, sé trúlofuð.

Í gær var greint frá því að Kourtney trúlofaðist kærasta sínum, trommaranum Travis Barker. Turtildúfurnar opinberuðu samband sitt í febrúar á þessu ári og hafa síðan þá verið ófeimin við að deila með alheiminum hversu mikið þau elska hvort annað.

Samband þeirra hefur ekki verið laust við drama. Það vakti mikla athygli í ágúst þegar einkaskilaboð Scott til Younes Bendjima, sem var með Kourtney á árunum 2016-2018, voru opinberuð. Younes birti skilaboðinn sjálfur en í þeim gagnrýndi Scott fyrrverandi kærustu sína og Travis.

Sjá einnig: Fyrrverandi Kourtney Kardashian afhjúpar skilaboð frá Scott Disick – „Er þessi gella í lagi?“

Í kjölfarið var greint frá því að Scott væri miður sín og niðurlægður eftir að skilaboðin fóru í dreifingu. Ekki nóg með það þá hætti kærasta hans með honum, Amelia Hamlin.

Sjá einnig: Tvítuga kærastan fékk nóg – Í sundur eftir að umdeildu einkaskilaboðin fóru í dreifingu

Travis Barker og Kourtney Kardashian. Mynd/Getty

Miður sín yfir trúlofuninni

Nú greina margir fjölmiðlar vestanhafs frá því að Scott á erfitt með trúlofun Kourtney og Travis. DailyMail segir að hann sé að „missa vitið“ og heimildarmaður E! Online segir að hann sé „gjörsamlega miður sín“.

„Scott er að missa vitið […] Þetta er mjög slæmt. Þetta mun bara versna,“ segir heimildarmaður Daily Mail.

Annar heimildarmaður E! Online, sem er náinn Scott, segir að hann hefði vitað að „það væri von á þessu“ en samt sem áður tók hann fréttunum illa.

„Hann er mjög sorgmæddur yfir þessu og líður illa,“ segir heimildarmaðurinn.

Scott og Kourtney hættu saman fyrir rúmlega fimm árum eftir áratuga langt samband. Þau eiga saman þrjú börn, Mason, Penelope og Reign. Þau gengu aldrei í hjónaband og verður því þetta fyrsta hjónaband Kourtney.

Þetta verður annað hjónaband Travis Barker, hann var giftur Shönnu Moakler á árunum 2004-2006 og eignaðist með henni tvö börn.

Sjá einnig: Kourtney Kardashian og fyrrverandi eiginkona kærastans fara í hart á Instagram

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Fyrir 2 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda