fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Fókus

Dressin hennar Díönu lifna við í The Crown – Sláandi lík

Tobba Marinósdóttir
Laugardaginn 12. desember 2020 20:00

Emma er sláandi lík Díönu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það lítur út fyrir að Díana Spencer Bretaprinsessa muni sigra heiminn á ný í gegnum áströlsku leikkonuna Emmu-Louise Corrin í nýjustu seríu The Crown á Netflix. 23 ár eru frá því að prinsessan lést skyndilega í bílslysi aðeins 36 ára gömul. Leikkonan unga þykir sláandi lík Díönu prinsessu en þær eru einnig báðar hávaxnar. Díana var 178 cm en Corrin er 174 cm. Corrin er fædd 1995 og hafði ekki mikið leikið þar til hún hreppti hlutverk í þáttaröðinni un bresku konungsfjölskylduna og þar með varð hún ein umtalaðasta leikkona heims.

Þykir búningahönnuðurinn Amy Roberts hafa unnið þrekvirki í þáttunum og lífgað við einstakan og eftirminnilegan klæðnað prinsessunar. Allt frá kindapeysum upp í stórkostlegan gala-klæðnað.

Mikið hefur verið lagt í alla umgjörð þáttanna en beðið var með mikilli eftirvæntingu eftir að Díana yrði kynnt til leiks. Klæðnaður prinsessunnar dáðu var saumaður eftir myndum og er oft um mjög nákvæma eftirlíkingu að ræða í þáttunum. Jafnvel minnstu smáatriði skína í gegn og má ætla að geysimiklar vinsældir þáttanna séu ekki síst raunveruleikablænum að þakka sem fæst með svo nákvæmum eftirmyndum. Díana prinsessa var mjög vinsæl og þótti hún ákaflega glæsileg en um leið alþýðleg eins og sést oft á klæðnaði hennar.

BLEIKADRESSIÐ Bleika doppótta dressið sem Díana klæddist í Ástralíu 1983.
FULLKOMLEGA BLÁTT Klæðnaðurinn sem Díana klæddist þegar þau Karl tilkynntu um trúlofun sína.
BRÚÐARKJÓLLINN Kjóllinn sem Díana gifti sig í 1981 var með hátt í 8 metra silkislóða.
BARNSLEGA FRÚIN Klæðaburður Díönu var allt frá því að vera barnalegur upp í frúarlegur
LEKKER lama eða kindapeysa sem fæstir myndu líta eins vel út í.
STÓRKOSTLEG einn af frægari kvöldkjólum Díönu.
SLÁANDI LÍKAR Díana og Emma þykja mjög líkar þá sérstaklega nefið og munnsvipurinn.
ÖNNUR DÝRAPEYSA Lama eða kind?
GLÆSILEG Gyllt kvöldverðardress, kjóll og jakki í stíl sem myndu gera flestar prinsessur grænar af öfund.
TAKIÐ EFTIR hversu vel er hugað að smáatriðum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinkonurnar gerðu skelfileg mistök í hópspjalli

Vinkonurnar gerðu skelfileg mistök í hópspjalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Typpið Júmbó var helsta stolt Bandaríkjaforseta – Vippaði því reglulega út og notaði til að þagga niður í blaðamönnum

Typpið Júmbó var helsta stolt Bandaríkjaforseta – Vippaði því reglulega út og notaði til að þagga niður í blaðamönnum
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hætti að drekka áfengi fyrir 5 árum

Hætti að drekka áfengi fyrir 5 árum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Gerði ótrúlega uppgötvun á Íslandi – Segir gestgjafa hennar hafa hlegið þegar hún spurði að þessu

Gerði ótrúlega uppgötvun á Íslandi – Segir gestgjafa hennar hafa hlegið þegar hún spurði að þessu