Fegurðardrottningin og áhrifavaldurinn Fanney Ingvarsdóttir hefur stofnað hlutafélagið Studios ehf. ásamt vinkonum sínum, þeim Þórhildi Gunnarsdóttur og Sóleyju Þorsteinsdóttur. Sú síðastnefnda rekur skartgripaverslunina My Letra, en Fanney hefur hannað sína eigin línu sem seld er hjá My Letra.
Tilgangur Studios ehf. er innflutningur, smásala og heildsala með ýmsar smávörur og annar skyldur rekstur. Enn fremur kaup og sala fasteigna og rekstur þeirra, lánastarfsemi og nauðsynleg umsvif í því sambandi. Stjórnarformaður er Fanney en framkvæmdastjórn er í höndum Sóleyjar.