fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fókus

Gleymdu orkupakkanum, þetta er það sem venjulegir Íslendingar vilja rífast um

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 29. ágúst 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir kynnu að halda að stærsta umræðuefni þjóðarinnar þessa dagana sé þriðji orkupakkinn, en þegar litið er á Facebook-hópinn Skreytum hús, þá kemur annað í ljós.

Í gær setti einn notanda síðunnar inn færslu sem vakið hefur svakalega athygli. Þar birtist ljósmynd úr stofu á íslensku heimili ásamt spurningu.

„Við kærastinn erum ekki alveg sammála. Hann vill hafa þessa kókkistu inn í stofu ekki ég. Hvað segið þið?“

Á myndinni má sjá kókkistu við hliðina á sófa í stofu. Kista þessi virðist vera að gera allt brjálað en þegar þessi frétt er skrifuð hafa 832 manns skrifað ummæli við færsluna, sem verður að teljast ansi mikið.

Fólk skiptist nefnilega í tvær fylkingar þegar kemur að kistu þessari, sumum sem finnst hún flott og öðrum sem finnst hún ógeðsleg.

„Geðveikt! Ef þetta gengur ekki hjá ykkur þá má hann senda mér skilaboð! Ég er ekki Gay en þessi kista er geðveik.“

„Út i bílskúr með hana…. kistuna… Eða niður í geymslu.“

„Mjög smart, finnst mér og þægilegt ef það er kók í henni.“

„leyfðu honum að hafa þetta í smá tíma og svo láta þetta hverfa.“

„Fínt ef þið ætlið að opna sjoppu, annars NEI… hrikalega hallærislegt.“

„Ertu að grínast? Allir karlmenn segja já og konur nei. Nei frá mér.“

„Er bjór í henni? Það gæti skipt máli.“

„Þetta er eins og að búa i sjoppu.“

„Hell no segi ég.“

„Um leið og pylsuvagninn kemur í stofuna þá já alveg endilega. verðið þið ekki líka með vegan pylsur í boði með kókinu?“

„Nei! ef minn kæmi með svona myndi ég troða karlinum ofan í kistuna og henda þeim báðum út.“

„Lol, nei. Hann verður bara að safna fyrir heimili með húsbóndaherbergi/man cave og þá getur hann haft þessa hörmung þar.“

Eins og sést eru skoðanir fólks á kistunni margar, en hver er þín skoðun kæri lesandi?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrósa hvort öðru á rauða dreglinum – Sögusagnir um ástarsamband fá byr undir báða vængi

Hrósa hvort öðru á rauða dreglinum – Sögusagnir um ástarsamband fá byr undir báða vængi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ástæða þess að Justin Bieber fengi helminginn af milljarða samningi eiginkonunnar ef þau skilja

Ástæða þess að Justin Bieber fengi helminginn af milljarða samningi eiginkonunnar ef þau skilja
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórleikarinn óþekkjanlegur við tökur – Deilur á tökustað vegna níðs og nektar

Stórleikarinn óþekkjanlegur við tökur – Deilur á tökustað vegna níðs og nektar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Diddy sagður hafa greitt öryggisverði milljónir svo myndbandið færi aldrei í dreifingu

Diddy sagður hafa greitt öryggisverði milljónir svo myndbandið færi aldrei í dreifingu
Fókus
Fyrir 4 dögum

FM95Blö rýfur þögnina – „Þetta eru búnir að vera skrítnir dagar“

FM95Blö rýfur þögnina – „Þetta eru búnir að vera skrítnir dagar“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bergur veit aldrei hvað vinnudagurinn færir – ,,Þegar fólk hringir á sjúkrabíl er það yfirleitt ekki venjulegur dagur og fólk oft í miklu uppnámi”

Bergur veit aldrei hvað vinnudagurinn færir – ,,Þegar fólk hringir á sjúkrabíl er það yfirleitt ekki venjulegur dagur og fólk oft í miklu uppnámi”