fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Eyjan

Haraldur Ólafsson skrifar: Rándýr rannsókn sem engu skilar

Eyjan
Laugardaginn 23. maí 2026 08:34

Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verulegur hluti vísindarannsókna á Íslandi nýtur stuðnings frá vísindasjóði Rannís.  Sjóðurinn styrkir aragrúa verkefna á fjölmörgum sviðum.  Verkefnin sem eru styrkt hafa verið rýnd af sérfræðingum á viðkomandi sviði.  Þeir líta til margra þátta sem skipta máli þegar kemur að því að fá traust svör við ósvöruðum spurningum sem skipta máli fyrir samfélagið og vísindin sjálf.  Vísindasjóður fær um 3 milljarða króna á ári úr sjóði almennings.

Nú ber svo við að hávær hópur manna krefst þess að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu til að svara einhverjum ósvöruðum spurningum.  Ríkisvaldið hefur metið að ferlið, að atkvæðagreiðslu meðtalinni, kosti 2-3 milljarða króna.  Líklega er það verulegt vanmat, því það kostar mikið að hafa her manns að störfum við að funda og rýna skjöl á öllum helstu málasviðum stjórnsýslunnar.

Fjölmargir rýnar hafa opinberlega bent á að aðildarferli að Evrópusambandinu muni ekki svara ósvöruðum spurningum, sem ekki má annað hvort svara með því að hringja í vin í Brussel eða með því að fletta upp í þeim 170 þúsund síðum sem munu rúma lög og reglur sambandsins.  Eftir munu þó standa ótal spurningar sem lúta að framtíðinni.  Engin mun svara þeim í aðildarferli. Ný lög koma á færibandi og enginn veit hvað kann að standa í óskrifuðum lagabálkum.  Við vitum þó að Evrópusambandið er í samrunaþróun og stefnir í átt að einu ríki.  Það gengur hægt, en gengur þó.  Hluti af samrunaþróuninni er að minnka vægi smáþjóða og þrengja að neitunarvaldi einstakra ríkja.  Ekkert bendir til annars en að sú þróun muni halda áfram.

Hvað ætli Rannísmenn segðu ef þess væri óskað að fá allan vísindsjóð með manni og mús til að borga fyrir eina rannsókn sem vitað væri að engu mundi skila?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir