

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hef ég verið svo lánsöm að fá að sækja fjölmarga viðburði á vegum framboða Viðreisnar um land allt. Þó sérstaklega í Norðvesturkjördæmi, þar sem Viðreisn býður fram í fyrsta sinn bæði í Ísafjarðarbæ og á Akranesi. Áhuginn, krafturinn og samheldnin sem einkennir þessi framboð er smitandi. Það er ljóst að um allt land er sannkallað viðreisnarvor fram undan.
Framboð um allt land
Í fyrsta sinn býður Viðreisn fram um allt land. Nýir listar hafa litið dagsins ljós víða og á hverjum stað má finna öflugan hóp fólks með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Þetta er fólk sem þekkir sitt nærumhverfi af eigin raun og vill sjá raunhæfar lausnir sem standast tímans tönn.
Á ferðum mínum finn ég fyrir sterkum meðbyr. Hvar sem ég kem hitti ég fólk sem vill sjá skynsama stjórnun, öfluga innviði og þjónustu sem virkar í raun. Þetta snýst ekki um slagorð eða klassíska frasa heldur um daglegt líf fólks. Um vegi sem eru færir, störf sem skapa öryggi, sorphirðu, farsímasamband og auðvitað um það hvernig við hugsum um fólkið okkar á öllum aldursstigum.
Við stöndum við orðin
Viðreisn hefur sýnt í verki að hún stendur við orð sín. Við erum að fjárfesta ríkulega í innviðauppbyggingu landsins og þorum að taka ákvarðanir um hvert skuli stefna. Þetta eru raunverulegar breytingar sem skipta máli í lífi fólks.
Í samtölum mínum við fólkið okkar kemur líka skýrt fram að mjög margir sjá fleiri tækifæri í en ógnir með auknu samstarfi við Evrópusambandið. Með slíku samstarfi opnast raunhæfir möguleikar til að fjármagna uppbyggingu innviða, auka fyrirsjáanleika og svigrúm til fjárfestinga. Hvort sem um er að ræða vegi, hafnir, fjarskipti eða raforkukerfi sem víða hafa setið á hakanum. Það er einfaldlega kominn tími til að horfast í augu við að innviðir landsins hafa verið vanræktir og þeirri þróun verðum við að snúa við. Það ríkir mikil eftirvænting eftir þjóðaratkvæði í ágúst hvert sem ég fer. Í öllum landshlutum.
Bjartsýni og viðreisnarvon
En það sem stendur upp úr eftir þessar vikur er bjartsýnin. Nú er vorið að ganga í garð, daginn tekið að lengja og lífið að kvikna á ný. Það er einhver sérstök tilfinning sem vaknar á vorin. Einhver frumkraftur og birta. Sú tilfinning endurspeglast í samtölum fólks um allt land í trú á að hægt sé að gera betur og vilji til að taka þátt í því.
Sveitarfélög landsins eiga sannarlega mýmörg tækifæri en ekki síst viðreisnarvon. Amk þar sem Viðreisn býður fram lista. En hún verður aðeins að veruleika ef við kjósum hana.
Gleðilegt Viðreisnarvor!