
Afar vandræðaleg staða kemur upp fyrir ensku úrvalsdeildina ef Manchester City tryggir sér Englandsmeistaratitilinn um svipað leyti og niðurstaða liggur fyrir í umfangsmiklu máli gegn félaginu. Þetta segja sérfræðingar.
City var ákært árið 2023 fyrir yfir 100 meint brot á fjármálareglum deildarinnar, sem ná yfir árin 2009 til 2018. Félagið hefur ávallt neitað öllum ásökunum, en málið hefur dregist á langinn og niðurstaða ekki enn fengist.
Lið Pep Guardiola er í harðri baráttu við Arsenal um titilinn og gæti unnið hann í fimmta sinn á sex árum. Sérfræðingar lögfræðiritsins The Lawyer telja að vandræðaleg staða gæti komið upp fyrir deildina á næstu vikum, verði það niðurstaðan.
„Enska knattspyrnan stendur nú frammi fyrir mjög óþægilegri stöðu þar sem félag gæti verið krýnt meistari á sama tíma og dómstóll kemst að þeirri niðurstöðu að það hafi brotið reglur ítrekað og yfir langt tímabil,“ segir í umfjöllun miðilsins.
Enn fremur segir miðillinn að málið sé martröð fyrir deildina, vegna óvissunnar og tímans sem það hefur tekið. Verði City sakfellt gæti það einnig haft veruleg áhrif á trúðverðugleika hennar.
The Lawyer virðist trúa því að niðurstaða gæti fengist í málið fyrr en síðar. Óvíst er hvernig City verður refsað ef félagið verður sakfellt. Ólíklegt er að sú refsing hefði bein áhrif á yfirstandandi leiktíð.