fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur fyrir blygðunarsemisbrot og fyrir vörslur á barnaníðsefni. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í gær.

Manninum var gert að sök að hafa í september á síðasta ári berað kynfæri sín utandyra og fróað sér. Þannig hafi hann sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi sem var til þess fallið að særa blygðunarsemi þeirra sem urðu vitni að því og var til opinbers hneykslis.

Eins var honum gert að sök að hafa í júlí 2023 og um langt skeið fram til þess dags haft í vörslum sínum teiknað efni, eða 2.600 ljósmyndir, 41 hreyfimynd í GIF-skráarformi og 49 myndskeið, sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Maðurinn geymdi efnið á farsíma sem var haldlagður af lögreglu við húsleit.

Maðurinn játaði sök en krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem maðurinn hlýtur dóm. Árið 2020 var hann dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir blygðunarsemisbrot og í janúar árið 2023 var hann dæmdur í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslur á teiknuðu barnaklámi.

Dómari taldi það til mildunar að maðurinn hefði játað og verið samvinnufús, en hann afhenti lögreglu að eigin frumkvæði gögn sem varða barnaníðsefnið. Dómari tók þó fram að þótt um væri að ræða teiknaðar myndir og myndskeið þurfi að horfa til þess að markmið refsingar fyrir vörslur á efni af þessu tagi, þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan og klámfenginn hátt, er að styrkja vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun m.a. í tengslum við gerð slíks efnis. Sérstaklega er vikið að því í athugasemdum við þá grein almennra hegningarlaga sem fjallar um barnaníðsefni, en þar kemur fram að efni af þessu tagi geti verið til þess fallið að hvetja til brota gegn börnum þótt brotið sem slíkt beinist í reynd ekki gegn barni.

Horfði dómari eins til þess að hvað varðar brotin frá júlí 2023 þá hafi ákæruvaldið dregið það óhóflega að gefa út ákæru. Um þetta verði manninum ekki kennt.

Þar með þótti hæfileg refsing vera 8 mánaða fangelsi en með hliðsjón af samvinnuvilja mannsins og vilja hans til að leita sér aðstoðar þótti dómara rétt að fresta fullnustu fimm mánaða af refsingunni skilorðsbundið til tveggja ára. Sagði maðurinn fyrir dómi að hann hafi ekki verið andlega tilbúinn að leita sér aðstoðar í samræmi við skilyrði dóms sem féll í janúar 2023 en hann telur sig tilbúinn til þess í dag.

Í dóminum frá 2023 hafði manninum verið gert að sæta umsjón og fyrirmælum hjá úrræðinu Taktu skrefið eins og ástæða þætti til og ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Um er að ræða úrræði á vegum Neyðarlínunnar þar sem hópur sálfræðinga aðstoðar fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi. Nú hefur manninum aftur verið gert að sæta umsjón hjá úrræðinu með sömu forsendum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás í Kópavogi

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás í Kópavogi
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“