
Eigendur Morgunblaðsins reyna áfram að koma sér saman um nýjan ritstjóra blaðsins en nú eru liðnir tveir mánuðir síðan Davíð Oddsson féll frá. Þær fregnir berast að öllum sé ljóst að eftirmaður á ritstjórastólinn finnist ekki meðal starfsmanna Árvakurs. Vitað er að Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson hafa látið sig dreyma um stærri hlutverk innan útgáfunnar en hvorugur þeirra kemst nærri því að hafa burði til að gegna þessu mikilvæga og vel launaða starfi.
Í áratugi hafa eigendur Morgunblaðsins lagt höfuðáherslu á að ráða til sín þjóðþekkta ritstjóra. Stórmenni á borð við Bjarna heitinn Benediktsson og Matthías Johannessen hafa gegnt stöðu ritstjóra og aðrir öflugir sjálfstæðismenn hafa einnig komið þar við sögu eins og Sigurður Bjarnason frá Vigur, Eyjólfur Konráð Jónsson og Styrmir Gunnarsson. Eftir að Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, var endurreistur fjárhagslega eftir hrun með niðurfellingu skulda við ríkisbanka, sem jafngildir 11 milljörðum króna á núverandi verðlagi, þótti við hæfi að bjóða fyrrum forsætisráðherra ritstjórastólinn. Davíð Oddsson tók við seint á árinu 2009. Áskrifendur blaðsins voru þá um 35 þúsund en þeim fækkaði hratt við þessa ráðstöfun og eru nú komnir niður fyrir 10 þúsund.
Orðið á götunni er að leitað sé að „stóru nafni“ og helst fyrrverandi eða núverandi forystumanni Sjálfstæðisflokksins. Vandinn er sá að ekki er þar um auðugan garða að gresja. Nafn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, alþingismanns og fyrrum ráðherra, hefur áður verið nefnt í fjölmiðlum í tengslum við ritstjórastöðuna og tilkynnt hefur verið að hún muni senn snúa heim frá Bandaríkjunum að afloknu því námskeiði sem hún hefur sótt þar á síðustu mánuðum. Áslaug er dóttir Sigurbjörns Magnússonar, sem gegnir hlutverki stjórnarformanns Árvakurs í umboði meirihlutaeigandans, Guðbjargar Matthíasdóttur auðkonu í Vestmannaeyjum. Áslaug er lögfræðingur að mennt eins og margir ritstjórar Morgunblaðsins hafa verið og hún vann sumarstörf á blaðinu með skóla. Eyjafólkið hefur verið einn helsti bakhjarl Áslaugar á stjórnmálaferli hennar. Eins og menn muna tapaði Áslaug Arna naumlega í formannskjöri í flokknum fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur í fyrra.
Ýmsum nöfnum hefur verið velt upp. Af fyrrverandi þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hafa einhverjir staldrað við þá Sigurð Kára Kristjánsson og Illuga Gunnarsson en þeir voru á sínum tíma áberandi ungir þingmenn sem eiga það sammerkt að hafa að mestu týnst eftir að ferli þeirra á Alþingi lauk.
Sigurður Kári Kristjánsson er 53 ára lögfræðingur sem sat á þingi frá 2003 til 2009 þegar hann féll út eftir hrunið en þá galt flokkurinn afhroð í kosningum. Síðan þá hefur Sigurður Kári fengist við lögmannsstörf og átt sæti í stjórn Heimsýnar sem er áhugamannafélag um einangrun Íslands. Hann var um tíma heiðurskonsúll Ísraels og gegndi stjórnarformennsku í flugfélaginu Play þegar það fór í gjaldþrot. Forystumenn í sjávarútvegi reyndu mikið að ná samstöðu um að ráða Sigurð Kára í stöðu framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins þegar Sigríður Margrét Oddsdóttir var ráðin. Ekki reyndist vera stuðningur við Sigurð Kára hjá öðrum samtökum og Sigríður Margrét var valin í stöðu framkvæmdastjórans.
Illugi Gunnarsson er 59 ára hagfræðingur sem sat á þingi frá 2007 til 2016 í 9 ár. Hann gegndi stöðu menntamálaráðherra frá 2013 til 2016 en bauð sig ekki fram til Alþingis að nýju eftir það. Á meðan Illugi var ráðherra komu upp vandræðaleg mál vegna tengsla hans við fyrirtækið Orka Energy en hann hafði ekki getið um tengsl sín við fyrirtækið og Hauk Harðarson eiganda þess í hagsmunaskráningu Alþingis eins og þingmönnum er skylt. Þóttu fjárhagsleg tengsl hans við eiganda fyrirtækisins ekki viðeigandi en um þau var talsvert fjallað í fjölmiðlum. Eftir það var nokkuð ljóst að Illugi héldi ekki áfram á vettvangi stjórnmála. Hann hafði áður orðið fyrir óþægindum vegna aðkomu sinnar að Sjóði 9 hjá Glitni fyrir hrun. Eftir stjórnmálaferilinn hefur Illugi m.a. komið við sögu í stjórn Byggðastofnunar og hjá Orkubúi Vestfjarða en ekki verið mjög sýnilegur við önnur viðfangsefni.
Orðið á götunni er að þeir Illugi og Sigurður Kári séu einlægir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins þótt áhrifa þeirra gæti ekki lengur í forystu hans. Engu að síður er ósennilegt að eigendur Morgunblaðsins treysti sér til að fela þeim hið mikilvæga embætti ritstjóra blaðsins – þá skorti báða trúverðugleika til þess og að þeir verði í engu bornir saman við fyrri ritstjóra blaðsins.
Það þyrfti því ekki að koma á óvart að niðurstaða eiganda Árvakurs verði sú að ráða Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur ritstjóra Morgunblaðsins.