fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Pressan
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 09:30

Karl og Trump ræða saman í gær við Hvíta húsið. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karl 3. Bretakonungur og Kamilla drottning eru nú stödd í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti og eiginkona hans, Melania, tóku á móti hjónunum í Hvíta húsinu í gær og virtist vel fara á með fjórmenningunum.

Varalesarinn Nicola Hickling segir að ýmislegt áhugavert hafi borið á góma í samskiptum Trumps og Karls á lóð Hvíta hússins í gær. Fréttamiðlar voru viðstaddir en orðaskipti þeirra Karls og Trumps heyrðust ekki í upptökum fjölmiðla.

Nicola ræddi við Daily Mail og segir hún að skotárásin á hátíðarkvöldverði blaðamanna í Washington á laugardagskvöld og Vladimír Pútín hafi meðal annars borið á góma.

„Þessi skotárás…,“ virðist Trump hafa sagt.

Nicola segir að Karl hafi svarað eitthvað á þessa leið: „Ég vil helst ekki standa hér of lengi,“ áður en hann bætti við: „Mér finnst ég ekki eiga að vera hér.“

Trump spurði þá hvort það væri allt í lagi með hann áður en hann hélt áfram: „Þetta er ekki gott.“

Trump er einnig eignuð setningin: „Ég var ekki undirbúinn, en nú er ég undirbúinn.“

Í framhaldinu skipti Trump um umræðuefni og sagði að hann væri í samskiptum við Vladimír Pútín, forseta Rússlands: „Ég er einmitt núna að tala við Pútín. Hann vill stríð.“

„Við ræðum þetta síðar,” mun Karl hafa sagt. Trump hélt samt sem áður áfram, að sögn Nicolu.

„Ég hef þá tilfinningu… ef hann gerir það sem hann sagði, þá gæti hann þurrkað út heilu samfélögin (e. wipe out the population).“

Karl er í kjölfarið sagður hafa ítrekað að hann vildi ræða þetta seinna.

Trump vék sér síðan að léttara efni og talaði um fyrirhugaðan veislusal (e. ballroom) í Hvíta húsinu: „Þú getur séð beint í gegn þarna, alla leið að danssalnum. Viltu sjá?“

Karl er sagður hafa svarað á þá leið að hann væri viss um að Trump myndi sýna honum staðinn og tók Trump undir það.

Að lokum spurði Karl: „Hvora leiðina förum við?“ og svaraði Trump þá að bragði: „Við förum þessa leið,“ áður en hann leiddi hópinn inn í Hvíta húsið.

Heimsókn Karls og Kamillu mun standa yfir í fjóra daga og mun Karl meðal annars ávarpa bandaríska þingið.

Töluverð spenna hefur verið í samskiptum Bandaríkjanna og Bretlands að undanförnu og hefur Trump verið mjög gagnrýninn á bresk stjórnvöld vegna stríðsins við Íran.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Í gær

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Í gær

Prófessor segir að heimurinn sé á leið inn í stórstyrjöld

Prófessor segir að heimurinn sé á leið inn í stórstyrjöld
Pressan
Í gær

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki