fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 14:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur beðist afsökunar á umdeildri færslu á X. Færsluna skildu margir þannig að þingmaðurinn væri að tengja saman aukna áherslu á menntun og starfsframa kvenna og lækkandi fæðingartíðni við slælega andlega heilsu þeirra. Hlaut hann töluverðar gagnrýni fyrir meðal annars frá flokkssystkinum sínum.

Færslan var gagnrýnd af bæði konum og körlum. Núverandi og fyrrverandi þingkonur gagnrýndu færsluna en meðal þeirra var Ragnheiður Ríkharðsdóttir fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Ása Berglind Hjálmarssdóttir núverandi þingmaður Samfylkingarinnar gagnrýndi það ekki síst að Jón Pétur hefði tiltekið sérstaklega konur á aldrinum 15-25 ára en Ása Berglind sagði að barneignir á táningsaldri væru ekki æskilegar og horfði þar til sinnar eigin reynslu.

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“

Jón Pétur dró í land í ræðu á Alþingi í dag undir dagskrárliðnum störf þingsins og endurbirti síðan ræðuna á samfélagsmiðlum.

Segir hann færsluna með réttu hafa farið öfugt ofan í marga það þyki honum miður og ljóst sé að orðalag færslunnar hafi ekki verið til sóma:

„Sá skilningur sem lagður hefur verið í færsluna er ekki í samræmi við það sem ég vil standa fyrir né það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. Með henni vildi ég ekki gera lítið úr rétti kvenna til menntunar, atvinnuþátttöku eða sjálfstæðis þeirra. Orðavalið „árþúsunda náttúruval“ var rangt, særandi og gaf aðra mynd af afstöðu minni en ég ætlaði. Fyrir það biðst ég einlæglega afsökunar.“

Jafnrétti

Jón Pétur þvertekur fyrir að vera uppsigað við jafnrétti til handa konum:

„Ég vil segja skýrt að ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál. Frelsi kvenna til að mennta sig, starfa, stofna fjölskyldu, eignast börn eða ekki, og byggja upp eigið líf er sjálfsagður réttur sem á að vera hafinn yfir allan vafa. Með færslunni vildi ég vekja athygli á geðheilsu ungs fólks. Það er málefni sem stendur mér nærri eftir áratugi í kennslu og starfi með börnum og ungmennum. Ég hef áhyggjur af kvíða, einmanaleika og skorti á tengslum.“

Jón Pétur segir ljóst að með orðalagi færslunnar hafi honum alls ekki tekist að koma því áleiðis hver meiningin á bak við færsluna hafi raunverulega verið:

„Ég gerði því máli enga greiða með orðalagi mínu. Ætlun mín var ekki að benda fingri á konur heldur að reyna að varpa ljósi á vanda sem snertir samfélagið allt. Framsetning mín var röng. Það voru mín mistök og ég ber ábyrgð á þeim. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur frelsis. En frelsi til að tjá sig fylgir ábyrgð. Þegar maður orðar hlutina illa þarf maður að viðurkenna það og gera betur. Það er það sem ég mun gera. Ég vona að við getum áfram rætt geðheilsu ungs fólks af alvöru, á grundvelli virðingar, staðreynda og þess frelsis sem við viljum öll verja.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“
Fréttir
Í gær

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Í gær

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“