fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 14:30

Lára er ósátt við gjaldtökuna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lára Zulima Ómarsdóttir, fyrrverandi fréttakona og leiðtogi almannatengsla hjá Pipar/TBWA, er ósátt við það sem hún kallar græðgi fyrirtækja við Laugaveg 26. Byrjað hafi verið að rukka í stæði allan sólarhringinn og nú fyllist stæðin við Grettisgötu sem íbúar þurfi að nota. Fyrirtækin segja eiganda hússins hafa tekið ákvörðun um gjaldtöku.

Teppa stæðin við Grettisgötu

„Ég verð að fá að lýsa yfir megnri óánægju minni með það að Verzlanahöllin og hin fyrirtækin við Laugaveg 26 séu búin að setja upp gjaldskyldu á stæðunum hjá sér,“ segir Lára í færslu í íbúagrúbbu Miðborgarinnar á samfélagsmiðlum.

Nefnir hún að það sé dýrara að leggja þar en við Grettisgötu sem þýðir að viðskiptavinir verslunarinnar komi til með að leggja þar og teppa bílastæðin sem íbúarnir þurfa að nota.

„Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn sem þýðir líka að fólk hvaðan æva að kemur til með að taka öll þessi örfáu stæði sem við íbúarnir hafa aðgang að,“ segir Lára.

Spyr hún hvað sé hægt að gera. Kvarta til borgarinnar eða setja þrýsting á fyrirtækin þarna að hætta við þetta.

„Hvað finnst ykkur sem búið hér í nágrenninu um þessa græðgi?“ spyr hún.

Ekki við

Forsvarskona Verzlanahallarinnar svarar Láru hins vegar og segir að þetta sé ekki í höndum verslunarinnar.

„Eigandi hússins ákveður þetta, við sem leigjendur ákváðum þetta ekki. Okkar viðskiptavinir greiða ekki fyrir stæðin okkar, þannig það verður ekki breyting vegna þessa,“ segir hún. „Eigandi hússins ákvað að ganga í þetta vegna þess að íbúar götunnar og fólk sem á önnur erindi en í húsið á Laugavegi 26 hafa hingað til ekki virt þessi einkastæði.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“
Fréttir
Í gær

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Í gær

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“