fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka

Eyjan
Laugardaginn 25. apríl 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég fór á dögunum í Landnámssetrið í Borgarnesi til að hlusta á einleik Unnar Aspar Stefánsdóttur um Sölku Völku. Um var að ræða stórkostlega og fallega sýningu. Þótt Unnur sé ein á senunni allan tímann tekst henni að túlka margar persónur í einu. Steinþór Steinsson, móðirin Sigurlína, Steinunn og Eyjólfur í Mararbúð, Jukki á Kvíum og ekki hvað síst Salka sjálf birtust áheyrendum ljóslifandi. Boðskapur Halldórs Laxness komst ágætlega til skila og sálarangist Sölku var áþreifanleg. Þetta var ótrúlegt leikhús í allri sinni smæð. Styrkleiki sýningarinnar er hversu trú Unnur og leikstjórinn Björn Thors eru upprunalega textanum. Þau fylgja handriti skáldsins og láta það ekki hræða sig að sumt tungutak hans sé illskiljanlegt yngri leikhúsgestum.

Nútímaleikhús einkennist af því hversu djarfir leikstjórar eru að breyta verkum látinna höfunda. Í síðustu uppfærslu Borgarleikhússins á Sölku árið 2017 var sýningin færð til nútímahorfs og nútímamáls og glataði öllum töfrum sínum. Óseyri við Axlarfjörð var gerð að fjölmenningarsetri (!!) Enskumælandi, úlpuklæddir túristar þvældust um sviðið í fullkomnu reiðileysi undir amerískri sveitatónlist. Stúlka söng nallann á frönsku. Salka Valka og Sigurlína móðir hennar háðu langdregna og leiðinlega keppni í teygjutvisti. Nokkrir karlar dönsuðu kringum Sölku og sungu: Í grænni lautu. Leikarar spjölluðu reglulega saman um sýninguna í svokölluðum spuna og dáðust að eigin túlkun og skilningi. Alþýðuhetjunni Sölu Völku var smám saman breytt í mannauðsstjóra í hallærislegri buxnadragt. Halldór sjálfur hefði ekki skilið upp né niður í eigin verki í þessari uppfærslu Borgarleikhússins. Í minningunni er þetta einhver versta og tilgerðarlegasta leiksýning sem ég hef séð á langri ævi.

Einmitt vegna þessa hreifst ég svo mjög af Unni Ösp og einlægri túlkun hennar á þessu meistaraverki Halldórs Laxness. Þessi sýning er leikhús í öllu sínu veldi þar sem leikstjórinn reynir ekki að yfirtrompa skáldið með alls konar delluhugmyndum. Stundum er einfaldleikinn fallegastur og kemur hugsun og boðskap höfundarins best til skila. Tvímælalaust besta sýning ársins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Eru hljóðbækur fyrir ólæsa sauði?

Nína Richter skrifar: Eru hljóðbækur fyrir ólæsa sauði?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Skýjaborgir eða raunveruleikinn

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Skýjaborgir eða raunveruleikinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Björn Jón skrifar: Þankar um hnignun

Björn Jón skrifar: Þankar um hnignun