

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Antonio Campion er látinn, aðeins 44 ára að aldri.
Campion, sem ólst upp í unglingastarfi AC Milan á sínum tíma, fannst látinn á heimili sínu í Treviso í gær.
Eiginkona hans, Elisa Zorzetto, fann hann í rúmi þeirra. Ekki náðist að endurlífga hann þrátt fyrir skjót viðbrögð viðbragðsaðila.
Talið er að Campion hafi farið í hartastopp yfir nótt. Engin saga um veikindi var hjá Campion, sem vekur enn meiri óhug.
Campion var ekki aðeins fyrrum efnilegur varnarmaður heldur einnig virtur lögmaður í heimabæ sínum, þar sem hann starfaði hjá fjölskyldureknu lögmannsfyrirtæki ásamt föður sínum.
Lögmannafélagið í Treviso lýsti yfir miklu áfalli og sorg vegna andláts hans og minntist hans sem fagmanns með sterkan karakter og jákvæða nærveru.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og unglingsdóttur.