fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
EyjanFastir pennar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur

Eyjan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sú sem þetta skrifar er ekki frá því að allnokkuð áhugaleysi sé ríkjandi meðal stórs hóps á komandi sveitarstjórnarkosningum 16. maí. Þrátt fyrir allnokkra leit gengur henni illa að finna fólk sem hefur áhuga á þeim kosningum. Hins vegar er ekki þverfótað fyrir fólki sem hefur mikla og heita skoðun á kosningunum 29. ágúst um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Nýleg skoðanakönnun sýnir að bæði meirihluti og minnihluti borgarstjórnar njóta umtalsverðra óvinsælda meðal borgarbúa. Ekki verður annað séð en að borgarbúar séu að æpa á breytingar. Blessunarlega höfðu nær allir flokkar vit á að fara í rækilega endurnýjun á framboðslistum sínum í borginni. Kannski þess vegna hefði maður haldið að hressileiki og gleði myndi einkenna kosningabaráttuna. Þessir eiginleikar hafa þó ekki verið áberandi. Kosningabaráttan hefur fram að þessu verið ansi syfjuleg.

Einstaka frambjóðendur hafa reyndar komið sér í sviðsljósið en ekki alveg á réttu forsendunum. Einn af þeim fjölmörgu karlmönnum sem Miðflokkurinn býður fram í sveitarstjórnarkosningunum, Ari Edwald leiðtogi flokksins í Reykjavík, vakti athygli á sér með því að rúnta um göngugötur miðbæjarins í leit að bílastæðum. Hann mun víst hafa brotið lög, sem er ekki gott hjá manni sem örugglega gengur með borgarstjóradrauma. Við vitum öll að borgarstjóri á að sýna gott fordæmi og virða lögin. Það sem þetta brölt Ara opinberaði helst er nær algjört þekkingarleysi hans á miðbæ Reykjavíkur, göngugötum borgarinnar og bílastæðum sem eru þar í miklum mæli, þótt frambjóðandinn hafi ekki tekið eftir þeim.

Sjálfsagt truflar það Ara, eins og ýmsa af hans kynslóð, að miðbær Reykjavíkur hefur tekið gjörbreytingum. Í gamla daga var hægt að rúnta niður Laugaveginn og koma svo við á Hallærisplaninu þar sem oft var mikið fjör. Menn gátu líka auðveldlega lagt bíl sínum á Laugaveginum og þrætt verslanir jafnlengi og það hentaði þeim. Það var þá. Nú hefur landsmönnum fjölgað rækilega og bílaeign sömuleiðis og því er alls ekki lengur raunhæft, hversu mjög sem menn þrá það, að gera miðbæinn að bílaleikvelli. Það eina sem það myndi skila er öngþveiti, pirringur og vitleysisgangur.

Víkur þá sögunni að Sjálfstæðisflokknum sem þráir mjög að komast til valda í borginni og ætti að geta vakið athygli á stefnumálum sínum með afgerandi hætti. Skrýtin áhersla flokksins í þeirri baráttu komst í fréttir. Af einhverjum ástæðum sá Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík ríka ástæðu til að minna á það á risastórum LED auglýsingaskiltum á Akureyri um páskana að bjórbann ríkti í Bláfjöllum.

Ekki skal gert lítið úr því áhugamáli sjálfstæðismanna á að leyfa drykkju hér og þar og alls staðar, en það er skrýtið að einmitt það stefnumál skuli hafa ratað á flennistórt auglýsingaskilti frekar en brýnni mál er varða beinlínis hag Reykvíkinga.

Meirihluti borgarstjórnar fann svo sitt brýna mál í því að koma í veg fyrir að unnar kjötvörur fái að sleppa inn í leik- og grunnskóla borgarinnar, fyrir utan örfáa daga á ári. Þarna sannaðist enn að hin þrúgandi hönd forræðishyggjunnar grúfir yfir þessum óvinsæla meirihluta. Þetta er meirihluti sem elskar boð og bönn, eins og vinstri menn gera í of miklum mæli. Enginn vill fylla mötuneyti skólanna af unnum kjötvörum en þetta er vitanlega allt of hörð stefna. Börn eiga að fá sínar pylsur og pylsupartý, einnig í skólanum. Þarna er líka verið að útiloka ýmsar tegundir af hefðbundnum íslenskum mat sem ungmenni ættu sannarlega fá að smakka á í skólum landsins og myndu örugglega vekja meiri áhuga flestra þeirra en óspennandi gulrætur, svo ekki sé nú talað um þann hrylling sem hafragrautur er.

Það er algjör óþarfi að gera hróp að þeim sem hafa gagnrýnt þessa ákvörðun meirihlutans. Þeir eru ekki að hvetja til stöðugrar óhollustu, heldur benda á að boð og bönn eru þarna ekki rétta leiðin, eins og á svo ótal mörgum stöðum.

Það styttist í kosningar. Frambjóðendur mættu vel muna að vits er þörf en ekki vitleysu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Sama ljóta blokkin um allt

Björn Jón skrifar: Sama ljóta blokkin um allt
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Skýjaborgir eða raunveruleikinn

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Skýjaborgir eða raunveruleikinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Innganga nýrra ríkja í ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Innganga nýrra ríkja í ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hart er í heimi

Óttar Guðmundsson skrifar: Hart er í heimi
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Málfarspistill

Björn Jón skrifar: Málfarspistill
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Jón Gnarr skrifar: Frelsi

Jón Gnarr skrifar: Frelsi