fbpx
Mánudagur 19.janúar 2026
Eyjan

Svandís hættir sem formaður VG

Eyjan
Föstudaginn 12. desember 2025 17:04

Svandís Svavarsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir mun ekki bjóða sig fram til endurkjörs sem formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framoð á landsfundi flokksins á komandi ári.

Þetta tilkynnti hún rétt í þessu í færslu á Facebook.

Hún segir að ákvörðunin sé persónuleg og tekin af yfirvegun eftir samtöl og umhugsun.

Svandís sem verður hefur borgarfulltrúi, ráðherra og þingmaður fyrir flokkinn virðist þó ekki ætla að segja alfarið skilið við stjórnmálin:

„Síðustu tuttugu ár hef ég helgað líf mitt stjórnmálum og baráttunni fyrir betra og réttlátara samfélagi. Sú barátta heldur áfram. Það hafa verið forréttindi að starfa í þágu almennings og fá að vera í framlínu stjórnmálanna allan þennan tíma.“

Vinstri græn eru eins og kunnugt ekki lengur með sæti á Alþingi en Svandís segist hafa fulla trú á mikilvægu hlutverki Vinstri grænna og muni leggja mitt af mörkum til að rödd hreyfingarinnar heyrist skýrt í komandi kosningum. Mannúð, réttlæti og ábyrgð gagnvart náttúrunni hafi aldrei verið brýnni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Rangt að segja engar undanþágur í boði – öll aðildarríki hafa fengið varanlegar sérlausnir um sína grundvallarhagsmuni

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Rangt að segja engar undanþágur í boði – öll aðildarríki hafa fengið varanlegar sérlausnir um sína grundvallarhagsmuni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan skrópar á nefndarfundum – Miðflokkurinn fremstur meðal jafningja

Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan skrópar á nefndarfundum – Miðflokkurinn fremstur meðal jafningja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurt um skilning jafnaðarmanna 2026

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurt um skilning jafnaðarmanna 2026
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur Egilsson: Ásthildar Lóu málið var verra fyrir Sjálfstæðismenn en málþófið – sátu eftir í fjóshaugnum

Vilhjálmur Egilsson: Ásthildar Lóu málið var verra fyrir Sjálfstæðismenn en málþófið – sátu eftir í fjóshaugnum