fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Eyjan

Orðið á götunni: Óskhyggja Morgunblaðsins glepur Sýn

Eyjan
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morgunblaðið reynir sem kunnugt er allt hvað það getur að leggja steina í götu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Sægreifarnir, eigendur blaðsins, beita miðli sínum ákaft fyrir sig en einhvern veginn eykst fylgi stjórnarinnar og stjórnarflokkanna á sama tíma og áskrifendum Morgunblaðsins og kjósendum Sjálfstæðisflokksins fækkar.

Í Ásthildar Lóu málinu köstuðu Morgunblaðið og fréttastofa RÚV boltanum á milli sín í miður geðfelldum árásum á menntamálaráðherrann fyrrverandi og tilraunum til að fella ríkisstjórnina í kjölfar afsagnar hennar en allt kom fyrir ekki.

Fyrir helgi gerði Morgunblaðið tilraun til að teikna upp þá mynd að „stirðleikar“ væru á stjórnarheimilinu. Blaðakona, sem virðist vera einhvers konar viðhengi skrímsladeildar Sjálfstæðisflokksins inni á ritstjórn Morgunblaðsins, skrifaði „frétt“ um vandræðagang og óánægju innan ríkisstjórnarinnar og milli ríkisstjórnarflokkanna. Orðið á götunni er að óskhyggja blaðamanns hafi skinið í gegnum skrifin. Í öllu falli var ekki staðreyndum fyrir að fara. Ekki dugði minna en uppsláttur á forsíðu Morgunblaðsins á föstudag og framhald á síðu tvö fyrir fabúleringar blaðakonunnar um ímyndað ósætti innan ríkisstjórnarinnar.

Sem kunnugt er hafa sægreifarnir nú læst klóm sínum í Sýn og eru farnir að beita ítökum sínum þar í gegnum stjórnarmann sinn í því félagi, Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur. Það var því eins og við manninn mælt að vitnað var í „fréttaskýringu“ blaðakonunnar í Mogganum í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þennan sama dag.

Ekki var látið þar við sitja heldur kallaður til sérstakur álitsgjafi sem var spurður að því hvort þetta væri rétt, hvort alvarlegur og almennur ágreiningur væri kominn upp innan ríkisstjórnarinnar. Téður álitsgjafi var enginn annar en Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, sem er í grjótharðri stjórnarandstöðu.

Orðið á götunni er að engum hafi komið það á óvart þegar Björn Ingi játti þessu og fullyrti að svo sannarlega væri allt í kaldakoli á stjórnarheimilinu. Þetta væru þrír ólíkir flokkar og nú, þegar alvara lífsins blasti við ríkisstjórninni, væru þetta bara tóm vandræði í stjórnarráðinu. Helst mátti á Binga skilja að tvísýnt væri hvort stjórnin lifði fram yfir helgi.

Orðið á götunni er að þarna hafi Morgunblaðið og Sýn, miðlar sægreifannna, spilað saman eins og sannkallaðir samherjar. Mogginn lagði upp boltann og Sýn renndi honum snyrtilega í netið. Nema hvað þetta var vitlausu megin á vellinum og niðurstaðan því sjálfsmark.

Orðið á götunni er að það muni lítt gagnast sægreifunum að reyna að beita miðlum sínum í falsfréttaflutning og upphlaup gegn vinsælli og samhentri ríkisstjórn. Fólk sér í gegnum svona takta og mislíkar. Þegar hefur verið grafið undan trausti almennings á Morgunblaðinu. Stjórnmálaskrif þess hafa um árabil lítt gagnast Sjálfstæðisflokknum og gersamlega gengið fram af flestum sem ekki eru innvígðir og innmúraðir.

Orðið á götunni er að fjárhagsvandi Sýnar muni bara aukast ætli fyrirtækið að láta leiða sig á bás skrímsladeildar Sjálfstæðisflokksins. Starfsmenn Sýnar verði að sýna sjálfstæði, standa fastir á sínu og hrista af sér dauðatak helblárrar handar sægreifanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigvaldi Einarsson skrifar: Áliðnaður framtíðarinnar er mættur – ætlum við aftur að selja auðlindirnar fyrir slikk?

Sigvaldi Einarsson skrifar: Áliðnaður framtíðarinnar er mættur – ætlum við aftur að selja auðlindirnar fyrir slikk?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Karl Ágúst Úlfsson: Átti ekkert að verða bók – svo komu orðin og minningarnar

Karl Ágúst Úlfsson: Átti ekkert að verða bók – svo komu orðin og minningarnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Reiði skólameistarinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Munurinn á aðildarþjóð og „lobbý-þjóð“

Þorsteinn Pálsson skrifar: Munurinn á aðildarþjóð og „lobbý-þjóð“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Tölum um krónuna … í alvöru!

Thomas Möller skrifar: Tölum um krónuna … í alvöru!