fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
Eyjan

Astma- og ofnæmisfélagið fordæmir hunda- og kattafrumvarp Ingu Sæland – „Það felur í sér algjöran hugsanafeil“

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 11. apríl 2023 11:30

Astma- og ofnæmisfélagið er ósátt við frumvarp Ingu Sæland um að rýmka fyrir hunda- og kattahaldi í fjölbýlishúsum. Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Astma- og ofnæmisfélag Íslands leggst eindregið gegn því að lögum um fjöleignarhús verði breytt þannig að rýmkað verði fyrir hunda- og kattahaldi íbúa. Yrði það gert segir félagið að verið væri að taka gæludýr fram yfir frumréttindi fólks.

Dýrhald aðeins bannað í einstökum tilvikum

Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp sem Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, leggur fram um breytingar á lögum um fjöleignarhús ásamt sex öðrum þingmönnum Flokks Fólksins og Pírata. Þetta er í annað skiptið sem Inga leggur frumvarpið fram en eins og áður segir snýst það um að rýmka verulega fyrir hunda- og kattahaldi í fjöleignahúsum.

Í dag þurfa gæludýraeigendur að fá samþykki 2/3 íbúðareiganda til að fá að halda dýr í fjöleignarhúsum. Frumvarp Ingu gerir dýrahaldið hins vegar heimilt en húsfélög gætu sett sér sérstakar reglur um gæludýrahald á húsfundum, með samþykki allra íbúa. Aðeins væri hægt að banna dýrahald með samþykki 2/3 hluta íbúa, í einstökum tilvikum. Það er „ef það veldur öðrum íbúum verulegum ama, ónæði og truflunum og eigandi dýrsins neitar að gera bót þar á,“ eins og segir í frumvarpinu.

Ljóst er að margir eru á sömu skoðun og Inga um að mikla réttarbót sé að ræða en á rafrænum undirskriftarlista til stuðnings frumvarpinu  sem stofnaður var í byrjun apríl hafa ríflega 9.000 manns skráð nafn sitt.

Frumréttindi fólks í annað sætið á eftir gæludýrum

Í þeim hópi eru þó ekki meðlimir Astma- og ofnæmisfélags Íslands eins og glögglega má lesa í umsögn félagsins um frumvarpið sem birt var á vef Alþingis í morgun.

„Með frumvarpinu um eru frumréttindi fólks tekin úr öndvegi og sett í annað sætið á eftir gæludýrum. Það felur í sér algjöran hugsanafeil og skerðir réttindi fólks með ofnæmi og fólks sem hræðist hunda og ketti,“ segir í umsögninni sem formaður AO, Fríða Rún Þórðardóttir skrifar undir.

Spyr Fríða Rún meðal annars hvað fjölskyldur eigi til bragðs að taka ef einhver meðlimur hennar glímir við ofnæmi gagnvart dýrunum. „Flytja í einbýli, flytja í húsnæði með sérinngangi, sem ekki er nú auðvelt þessa dagana vegna skorts á húsnæði t.d. á höfuðborgarsvæðinu. Hvað með börn sem fjölskyldunni tilheyra eiga þau að rífa sig upp og hoppa inn í næsta skóla og skólasamfélag. Hvað með tómstundir þessara barna og aðgengi þeirra að þeim?“ spyr Fríða Rún.

Svarið er að finna í greinargerð með frumvarpinu en þar er sérstaklega tekið fram að ef fólk er með svo mikið ofnæmi eða fælni gagnvart dýrum þá geti það einfaldlega flutt í íbúð með sérinngangi í stað þess að girt sé fyrir frelsi annarra til gæludýrshalds.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnir skuldaaukningu Hafnarfjarðarbæjar – „Lántökur aukast umtalsvert milli ára“

Gagnrýnir skuldaaukningu Hafnarfjarðarbæjar – „Lántökur aukast umtalsvert milli ára“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræður forsetaframbjóðendanna sex – „Er ekki best að allir 12 frambjóðendur fái einn mánuð á ári í embætti?“

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræður forsetaframbjóðendanna sex – „Er ekki best að allir 12 frambjóðendur fái einn mánuð á ári í embætti?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þeir slá úr og í

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þeir slá úr og í
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Sömu gildi og byggðu upp Ísland eru lykillinn að framtíðinni

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Sömu gildi og byggðu upp Ísland eru lykillinn að framtíðinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi