fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Afstaða landsmanna til flóttafólks harðnar

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 22. nóvember 2022 08:00

Flóttamenn sofa á gólfi lestarstöðvar. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar, sem Prósent gerði, þá telja 33% svarenda að of margir flóttamenn fái hæli hér á landi. Fyrir tæplega hálfu ári var hlutfallið 22,5%. Á sama tíma hefur hlutfall þeirra sem telja að tekið sé við of fáum flóttamönnum lækkað úr 40,4% í 31%.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að þrátt fyrir þessa sveiflu þá sé um það bil sama hlutfall svarenda sátt við stefnu stjórnvalda og telja að hæfilega margir fái hæli hér á landi. Hlutfallið mælist nú 36% en var 37,1% í könnun Prósents frá í júní.

Hvað varðar harða afstöðu til flóttamanna skera kjósendur Miðflokksins sig úr. 77% þeirra telja að tekið sé við of mörgum og 2% telja að tekið sé við of fáum.

58% kjósenda Flokks fólksins telja að of margir flóttamenn fái hæli hér á landi.

48% Sjálfstæðismanna telja að tekið sé við of mörgum og 9% að tekið sé við of fáum. Í júní töldu 34% Sjálfstæðismanna að tekið væri við of mörgum flóttamönnum og 19% töldu að tekið væri við of fáum.

Framsóknarmenn hafa einnig harðnað í afstöðu sinni en nú telja 41% þeirra að tekið sé við of mörgum flóttamönnum en í júní var hlutfallið 20%. 13% telja að tekið sé við of mörgum en í júní var hlutfallið 22%.

Hægt er að lesa nánar um málið í Fréttablaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“