fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Eyjan

Forseti Úkraínu ávarpar íslensku þjóðina á morgun

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 5. maí 2022 14:12

Volodymyr Zelenskyy. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Volodymyr Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpar alþingismenn og íslensku þjóðina föstudaginn 6. maí kl. 14.00 í gegnum fjarfundabúnað við sérstaka athöfn í þingsal Alþingis.

Hægt verður að fylgjast með ávarpinu í sjónvarpi, á vef Alþingis og öðrum vefmiðlum. Ávarp Zelenskís er einstakur viðburður því þetta verður í fyrsta skipti sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp í þingsal Alþingis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþingi.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, mun stýra þessari sérstöku athöfn og talar við upphaf hennar. Þá mælir forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, nokkur orð fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Síðan tekur Zelenskí til máls. Að loknu ávarpi Zelenskís ávarpar forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, forseta Úkraínu. Ísland hefur frá upphafi fordæmt tilefnislausa innrás Rússlands í Úkraínu og lýst yfir eindregnum stuðningi við úkraínsku þjóðina og þarlend stjórnvöld. Ísland tekur fullan þátt í alþjóðlegum þvingunaraðgerðum gegn Rússlandi, styður við mannúðaraðgerðir Sameinuðu þjóðanna og annarra stofnana og tekur á móti fólki á flótta frá Úkraínu. Þá hefur Ísland haft milligöngu um loftflutninga búnaðar, þar á meðal hergagna, í tengslum við varnir Úkraínu.

Ísland mun áfram leita leiða til þess að styðja við Úkraínu með öllum þeim ráðum sem stjórnvöldum eru tiltæk og í samræmi við þær þarfir sem uppi eru í Úkraínu, segir í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Pétur Marteinsson: Óábyrgt að taka upp Samgöngusáttmálann – fáum ekkert svona samkomulag aftur

Pétur Marteinsson: Óábyrgt að taka upp Samgöngusáttmálann – fáum ekkert svona samkomulag aftur
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Pétur Marteinsson: Stríddi við námsörðugleika – fótboltinn gaf mér sjálfstraust

Pétur Marteinsson: Stríddi við námsörðugleika – fótboltinn gaf mér sjálfstraust
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Vilhelm Jónsson skrifar: Sjálfskapavíti borgaryfirvalda – hvenær er komið nóg?

Vilhelm Jónsson skrifar: Sjálfskapavíti borgaryfirvalda – hvenær er komið nóg?
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin