
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, gerði ummæli Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra að umræðuefni sínu í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. „Nú um helgina bárust fréttir af því að hæstvirtur innviðaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hafi látið afar óviðeigandi ummæli falla um starfsmann Bændasamtaka Íslands,“ sagði Halldóra í upphafi ræðu sinnar.
„Ummælin sem um ræðir voru rasísk, þau voru niðrandi og þau voru særandi. Nú hefur starfsmaðurinn umræddi stigið fram og tjáð sig um upplifun sína sem staðfestir innihald fréttarinnar. Ummælin sem voru látin falla teljast áreitni í skilningi laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna og falla þannig undir bann gegn mismunun samkvæmt lögum.“
Í ljósi þessa ummæla beindi Halldóra spurningum að Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. „Mig langar í því ljósi að spyrja hæstvirtann forsætisráðherra hvernig hún telji að ríkisstjórnin ætti að axla ábyrgð á ummælum innviðaráðherra. Mun hæstvirtur forsætisráðherra og ráðherra jafnréttismála fara fram á að innviðaráðherra segi af sér?“
Katrín svaraði ekki spurningu Halldóru beint, það er með já eða nei. Ljóst er þó á svari hennar að ekki hefur verið gerð sú krafa innan ríkisstjórnarinnar að Sigurður Ingi segi af sér fyrir ummælin. „Hæstvirtur innviðaráðherra hefur stigið fram og beðist afsökunar á ummælum sínum. Sú afsökunarbeiðni endurspeglar þá afstöðu hans að ummælin hafi verið röng og þau hefðu ekki átt að falla enda óásættanleg með öllu,“ sagði Katrín í svari sínu.
„Við gerum þá kröfu í íslensku samfélagi að öllum sé sýnd virðing í hvívetna og á ráðherrum í ríkisstjórn hvílir ríkari krafa og undir henni eigum við ráðherrar að standa. Þegar mönnum verður á og þeir gera mistök skiptir hins vegar máli að þeir stígi fram og biðjist afsökunar með skýrum hætti sem innviðaráðherra hæstvirtur hefur gert og það skiptir máli.“
Halldóra fór þá aftur upp í pontu. Hún sagði að þó svo að Katrín beri ekki beina ábyrgð á orðum eða gjörðum ráðherra innan hennar ríkisstjórnar þá beri hún ábyrgð sem leiðtogi ríkisstjórnarinnar á því að vera leiðandi í þeim samfélagsbreytingum sem hún sjálf boðar
„Það er hennar að draga línuna í sandinn. Ef hún ætlar að vera kyndilberi jafnréttis út á við hlýtur hún að þurfa að bregðast við á einhvern hátt þegar ráðherra í hennar eigin ríkisstjórn verður uppvís að framkomu sem brýtur í bága við allt sem hún segist standa fyrir – að minnsta kosti þegar það hentar henni.“
Þá bar Halldóra upp fleiri spurningar fyrir Katrínu en hún veltir því fyrir sér hvort það sé nóg að biðjast afsökunar í málum sem þessu. „Þannig að ég spyr, hversu alvara er hæstvirtum forsætisráðherra um að uppræta mismunun þegar í harðbakkann slær, hvar stendur hæstvirtur forsætisráðherra? Er nóg að bara biðjast afsökunar á lögbroti?“ spurði hún.
„Eru það skilaboðin inn í framtíðina? Að ef ráðherra brýtur lög eða sýnir hegðun sem er á skjön við skilaboð ríkisstjórnarinnar, er á skjön við þá hegðun sem ríkisstjórnin fer fram á að borgarar landsins sýni – er þá nóg að segja bara afsakið, þetta voru mistök? Nú er ég ekki að segja að það sé ekki gott að biðjast afsökunar, auðvitað er það gott – en er það nóg?“
Katrín fór þá aftur upp í pontu og svaraði Halldóru. Í því svari kom í ljós að Katrín telur að afsökunarbeiðnin sé vissulega nóg
„Forsætisráðherra stendur bara nákvæmlega þar sem hún hefur staðið hingað til og stendur þar áfram. Það liggur algjörlega fyrir að þau ummæli sem vitnað er til voru óásættanleg og ég rengi ekki orð framkvæmdastjóra Bændasamtakana í þeim efnum. En við verðum líka að geta tekið því þegar fólk biðst afsökunar eins og hæstvirtur innviðaráðherra hefur gert með mjög skýrum hætti.“