
Inga Sæland, þingmaður Flokks fólksins, hefur verið fjarri góðu gamni á þingpöllunum undanfariði. Hún greinir nú frá því á Facebook að það sé sökum veikinda.
„Ég hef fengið margar fyrirspurnir um af hverju ég sjáist ekki í þinginu þessa dagana. Ég hef verið að glíma við smá lasleika sem ekki þarf að mikla neitt fyrir sér, en þó svo að ég þarf að taka á þessu og reyna mitt til að ná fullri orku á ný, ekki veitir af í baráttunni okkar. Að sjálfsögðu mun ég koma þríelfd til baka. Ástarkveðjur til ykka rallra og haldið áfram að sakna mín.“