fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Sandra sækist eftir þriðja sætinu

Eyjan
Laugardaginn 5. febrúar 2022 15:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögmaðurinn Sandra Hlíf Ocares sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hún telur að þjónustan við fólkið í borginni hafi mætt afgangi undanfarið og þarfir þess ekki verið í forgangi – þessu vill hún breyta.

Sandra er fædd árið 1980 og er með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur hlotið lögmannsréttindi. Undanfarin þrjú ár hefur hún starfað sem verkefnisstjóri Byggingavettvangsins sem vann meðal annars að breytingum á nýju mannvirkjalögunum. Auk þess hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eik fasteignafélagi og sem yfirlögfræðingur leikjafyrirtækisins Plain Vanilla.

Hún situr í barnaverndarnefnd Reykjavíkur og í kærunefnd útlendingamála og hefur auk þess gegnt ýmsum stjórnar- og trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún hefur einnig setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, í stjórn VÍS, sem varaformaður stjórnar ÍV sjóða og sem formaður tilnefninganefndar VÍS.

Í framboðstilkynningu segir Sandra að borgin hafi alla burði til að eflast næstu árin – sé haldið rétt á spilunum.

„Borgin líður nú fyrir óþarflega mikla yfirbyggingu og kerfishugsun. Þjónusta við fólkið í borginni hefur mætt afgangi og þarfir þess ekki verið i forgangi. Þessu vil ég breyta. Ég trúi því að með nýrri og lausnamiðaðri hugsun megi leysa vanda fjölskyldufólks, húsnæðisvandann og seinagang borgarkerfisins ásamt því að eyða ákvarðanafælni. Ég býð fram krafta mína og reynslu í það verkefni.“

Hún segir að yfirbyggingin í borginni hafi fengið að vaxa nær stjórnlaust síðustu ár og skera þurfi þar niður.

„Ótal tækifæri liggja í að einfalda regluverk og löngu tímabærum áherslum á tækni og rafræna stjórnsýslu. Þannig losna fjármunir sem nýta má í grunnþjónustuna sem fólkið treystir á að sé í lagi.“

Í tilkynningu segir enn fremur:

„Börnin í borginni eiga að búa við sömu tækifæri og njóta umhverfis þar sem þau blómstra á eigin forsendum. Ég legg áherslu á að foreldrar hafi val þegar kemur að þjónustu leik- og grunnskóla og að yngstu börnin eigi öruggt pláss á leikskóla.

Húsnæðisvandinn í Reykjavík er risastórt velferðarmál sem þarf að taka föstum tökum og leysa. Mörg tækifæri liggja í því að nýta tæknina til að stytta biðtíma og auka gagnsæi. Sveigjanleiki er lykilatriði í því að hægt sé að byggja upp fjölbreytt og gott húsnæði eftir þörfum borgarbúa. 
Borgin okkar á miklu meira inni og á að geta verið frábær staður fyrir alla íbúa hennar – óháð aldri, lífsstíl, fjölskyldumynstri eða hverfum. Reynsla mín úr atvinnulífinu, nefnda- og stjórnarsetu og sem íbúi Reykjavíkur veitir mér góðan grundvöll til að takast það verkefni á hendur. Ég vil gera borgina betri fyrir okkur öll. 
Ég óska því eftir stuðningi Sjálfstæðisfólks í Reykjavík í 3. sætið“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG