fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Framlög til heilbrigðismála hækka um 22 milljarða

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 15. desember 2021 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga 2021, sem hefur verið lagt fram á Alþingi, hækka framlög til heilbrigðismála um 22 milljarða. Þyngst vega útgjöld vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar en þau nema 16 milljörðum.

Morgunblaðið skýrir frá þessu. Fram kemur að samtals nemi aukin útgjöld vegna heimsfaraldursins og afleiðinga hans 23,6 milljörðum.

Í frumvarpinu er óskað eftir heimild til að verja fjórum milljörðum í kaup á Hótel Sögu undir starfsemi Háskóla Íslands og kaup á jörðinni Mið-Fossum í Borgarbyggð vegna starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.

Í frumvarpinu kemur fram að Hótel Saga verði keypt með Félagsstofnun Stúdenta og verði eignarhlutur ríkisins 73%. Stefnt er að því að nýta húsnæðið undir starfsemi menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Með eigninni fylgir byggingarréttur sem verður hægt að nýta undir aðra starfsemi háskólans í framtíðinni.

Hvað varðar jörðina á Mið-Fossum þá á að nýta hana undir kennsluaðstöðu á sviði reiðmennsku og til að byggja upp aðstöðu fyrir tilraunir, kennslu og nýsköpun í jarðrækt.

Einnig er farið fram á 940 milljóna króna viðbótarframlag til fæðingarorlofssjóðs en ljóst er að greiðslur úr sjóðnum verða meiri á árinu en fjárheimild er fyrir. Ástæðan er að útgjöld vegna fæðinga á síðari hluta ársins 2019 eru hærri en ráð var fyrir gert vegna þess að hærra hlutfall feðra tekur fæðingarorlof á síðari hluta orlofstímabilsins en árin á undan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“