fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Eyjan

Björn Ingi segir skrifstofufólk hafa leyft opnun líkamsræktarstöðva

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 20. október 2020 12:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er komin upp stórmerkileg staða í varnarbaráttu okkar sem samfélags gegn veirunni“

Þetta segir Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn Veiru, á Facebook-síðu sinni í dag.

„Sóttvarnalæknir telur sérstaklega varasamt við þessar aðstæður að opna líkamsræktarstöðvar. Hann segir að smit innan veggja þeirra hafi verið ein helsta uppistaðan í þeirri bylgju sem við höfum verið að kljást við undanfarnar vikur og sér ekki fyrir endann á,“ segir Björn Ingi sem hefur verið duglegur að tjá sig um aðgerðir gegn veirunni í faraldrinum.

„En nú ber svo við að skrifstofufólk í heilbrigðisráðuneytinu (á ábyrgð heilbrigðisráðherra) er ekki sammála honum og ætlar víst að leyfa opnun líkamsræktarstöðvanna í dag,“ segir hann og veltir því fyrir sér hvort þetta skrifstofufólk geti ekki gengið lengra.

„Er ekki þá rétt að þetta sama skrifstofufólk mæti á næstu upplýsingafundi og fari yfir með okkur hvernig það vill tækla næstu skref?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Missir Sjálfstæðisflokksins

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Missir Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Viðreisn í lykilstöðu samkvæmt nýrri könnun

Orðið á götunni: Viðreisn í lykilstöðu samkvæmt nýrri könnun
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Viðhaldsframkvæmdir í fjöleignarhúsum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Viðhaldsframkvæmdir í fjöleignarhúsum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Gagnrýni ráðherra á ETS er óábyrg og verri en að „pissa í skóinn“ – Röng nálgun á raunverulegt vandamál

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Gagnrýni ráðherra á ETS er óábyrg og verri en að „pissa í skóinn“ – Röng nálgun á raunverulegt vandamál