fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Eyþór segir uppgjörið lakara en gert var ráð fyrir – Dagur segir uppgjörið framar vonum

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 29. ágúst 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hálfs árs uppgjör Reykjavíkurborgar sýnir sterkan rekstur en samstæða borgarinnar var rekin með 7,7 milljarða króna afgangi fyrstu sex mánuði ársins,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þar er orðalagið nokkuð annað og jákvæðara en í tilkynningu Sjálfstæðisflokksins frá því fyrr í dag, um sama hlut. Þar er fundið að skuldaaukningu og að niðurstaðan sé lakari en ráð var gert fyrir:

„Árshlutareikningur samstæðu Reykjavíkurborgar fyrir fyrri helming ársins 2019 var til afgreiðslu í borgarráði í morgun. Rekstrarniðurstaða A-hluta borgarinnar er lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir og versnar um helming frá sama tímabili og á síðasta ári. Ef ekki kæmi til matsbreyting fasteigna Félagsbústaða hf. upp á 3,5 milljarða væri sama staða hjá samstæðunni í heild.“

Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir hinsvegar að farið hafi verið framúr vonum:

„Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, sem lagt var fram í borgarráði í dag, var jákvæð um 7,7 milljarða en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á 6,6 milljarða króna. Rekstrarniðurstaðan er því 1.177 milljón krónum betri en gert var ráð fyrir. Betri rekstrarniðurstöðu má einkum rekja til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða.“

Sjá nánar: Eyþór um uppgjör Reykjavíkurborgar:„Ekki gott veganesti út úr lengsta hagvaxtarskeiði lýðveldissögunnar“

Grænar tölur hjá Degi

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir niðurstöðuna góða einkum í ljósi þess að merki séu um samdrátt í hagkerfinu:

„Tölurnar í rekstrinum eru allar á grænu og staða borgarinnar sterk. Við höfum verið að bæta fjármagni í skólamálin og velferðarmálin jafnt og þétt en á sama tíma erum við í stórum og miklum fjárfestingum um alla borg til dæmis í skólabyggingum, íþróttamannvirkjum, götum, torgum og hjólastígum. Árshlutauppgjörið gefur ágætar vísbendingar um framhaldið en við þurfum að halda vel á spöðunum áfram.“

Eyþór minnist hinsvegar meira á skuldirnar en Dagur:

„Skuldir og skuldbindingar A-hluta vaxa um 5,5, milljarða á sex mánuðum sem er nálægt milljarði á mánuði en skuldir samstæðunnar í heild aukast um 19 milljarða á sama tímabili eða um rúma þrjá milljarða á mánuði.“

Heildarskuldir 343 milljarðar króna

Þá segir ennfremur í tilkynningu Reykjavíkurborgar:

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 1.653 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 2.318 mkr á tímabilinu. Niðurstaðan er því 665 mkr lakari en gert var ráð fyrir.  Lakari rekstrarniðurstaða skýrist einkum af lægri tekjum af sölu byggingarréttar, lægri skatttekjum og hærri gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga en áætlun gerði ráð fyrir.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 1.811 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 3.188 mkr eða 1.377 mkr undir áætlun.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok júní 673 milljörðum króna, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 343 milljarðar króna og eigið fé var 330 milljarðar króna en þar af var hlutdeild meðeigenda 17,5 milljarður króna.

Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er nú 49% en var 49,4% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar jan-júní 2019

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega