fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

BÍ baunar á Íslandsbanka – „Frekar halli á aldur og stétt“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 25. október 2019 14:40

Hjálmar Jónsson, formaður BÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blaðamannafélag Íslands samþykkti ályktun á stjórnarfundi í dag vegna þeirrar ákörðunar Íslandsbanka að neita að kaupa þjónustu af þeim fjölmiðlum sem ekki uppfylla kröfur bankans um jafnt kynjahlutfall meðal dagskrárgerðarfólks og viðmælenda.

Segir blaðamannafélagið að um fráleita aðför að ristjórnarlegu sjálfstæðis sé að ræða:

„Fráleit aðför Íslandsbanka að ritstjórnarlegu sjálfstæði fjölmiðla þjónar ekki hagsmunum jafnréttisbaráttunnar og það verður að gera þær kröfur til banka í eigu almennings og þá sem stýra þar málum í umboði hans að þeir vandi betur til verka.

Mun bankinn ekki auglýsa í Vikunni vegna viðvarandi kynjahalla á ritstjórn og í hópi viðmælenda? Mun bankinn ekki auglýsa í Fiskifréttum vegna viðvarandi kynjahalla á ritstjórn og í hópi viðmælenda? Það var raunar Vikan sem setti á dagskrá mögulegt mansal í íslensku samfélagi og viðkomandi blaðamaður mátti skjóta máli sínu til Mannréttindadómstólsins til að fá réttingu mála sinna og tímaritið Ísafold mátti þola það að önnur af tveimur stærstu smásölukeðjum landsins neitað að dreifa blaðinu vegna umfjöllunar um nektardansstaði og þá starfsemi sem þar færi fram!“

Ömurleg íhlutun

Þá er sagt að sjálstæði fjölmiðla sé algert grundvallaratriði sem ekki mega hlutast til um líkt og dæmin sanni:

„Það er því ekki nýtt að fjársterkir og valdamiklir aðilar í landinu reyni að hlutast til um umfjöllunarefni fjölmiðla og hafa áhrif á þau, en ömurlegt að upplifa það að fyrirtæki í eigu almennings hagi sér með þessum hætti. Allar slíkar tilraunir eru í andstöðu við alþjóðlegar skuldbindingar um frelsi fjölmiðla.

Ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla og fjölmiðlamanna er algjört grundvallaratriði í lýðræðislegri umræðu nútímans. Annars er hættan sú að samfélagið sé ekki endurspeglað með hlutlægum hætti og þar með bíður traustið hnekki sem er grundvöllur lýðræðislns. Þessa vegna mun Blaðamannafélag Íslands ávallt berjast gegn hvers kyns tilraunum til að hafa áhrif á ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla, hvort sem þar á í hlut Fjölmiðlanefnd, eigendur eða auglýsendur.“

Fjölmiðlar til framfara

Nefnt er að fjölmiðlar hafi oftar en einu sinni komið upp um allskyns mál sem hjálpað hafi þjóðfélaginu:

Fjölmiðlar og fjölmiðlamenn hafa verið aflvaki breytinga í íslensku samfélagi og átt stóran þátt í þeim framförum sem íslenskt samfélag hefur sannarlega tekið á undanförnum áratugum. Það voru íslenskir blaðamenn og fjölmiðlar þeirra sem settu samkynhneigð á dagskrá í íslensku samfélagi, misnotkun barna, heimilisofbeldi og ástandið á uppeldisheimilum á árum áður, svo fáein dæmi séu tekin. Og það má halda því fram með rökum að frekar halli á aldur og stétt í umfjöllun íslenskra fjölmiðla en kyn.

Nú verður því ekki trúað að umfjöllun fjölmiðla í gegnum tíðina um launakjör og sjálftöku forsvarsmanna bankakerfisins, sem hagar sér eins og ríki í ríkinu, nýjasta dæmið verandi ríflegur endurmenntunarstyrkur í Seðlabankanum, sem bankinn móaðist við í tæpt ár að veita upplýsingar um, valdi þessari einkennilegu ákvarðanatöku, en sporin hræða. Hugmyndir Íslandsbanka í þessum efnum eru greinilega illa ígrundaðar og hljóta að verða lagðar til hliðar. Bankinn getur lagt jafnrétti lið með mörgum öðrum hætti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn