fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Eyjan

Mótmælafundur gegn komu Mike Pence

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 3. september 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mótmælafundur gegn komu Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, hingað til lands verður haldinn á Austurvelli, á miðvikudag kl. 17:30.

Bæði hernaðarandstæðingar og hinsegin-baráttufólk mun halda ræður til höfuðs bandaríska varaforsetanum. Fréttatilkynning um málið er eftirfarandi:

Mike Pence varaforseti Bandaríkjanna er á leið til Íslands eins og rækilega hefur komið fram í fjölmiðlum. Alkunna er að stefna og framkoma varaforsetans og ríkisstjórnar hans er í andstöðu við skoðanir og gildi fjölmargra Íslendinga. Af því tilefni hafa fjöldi félagasamtaka tekið sig saman um að boða til útifundar á Austurvelli miðvikudaginn 4. september kl. 17:30 undir yfirskriftinni: „Partý gegn Pence: stöndum með friði, frelsi og grænni framtíð“.

Fundurinn er hugsaður sem vettvangur fyrir fólk úr öllum áttum til að tjá afstöðu sína til stefnu Trump-stjórnarinnar í friðar- og afvopnunarmálum, kvenfrelsismálum, málefnum hinseginfólks, á sviði umhverfisverndar og framkomu við flóttafólk. Félagasamtökin sem að fundinum standa vinna einmitt að þessum málaflokkum.

Flutt verða fjögur stutt ávörp, en ræðumenn verða Guttormur Þorsteinsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, María Helga Guðmundsdóttir fv. formaður Samtakanna 78, Hildur Knútsdóttir rithöfundur og umhverfisverndarsinni og Randi Stebbins mannréttindalögfræðingur. Einnig verður boðið upp á tónlistaratriði. Almenningur er hvattur til að mæta á Austurvöll og láta skoðun sína í ljós, hvert með sínu nefi.

Sjá einnig Facebook-viðburð samkomunnar: https://www.facebook.com/events/2305704402818185/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Hvað segja Bretar nú um Brexit?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Hvað segja Bretar nú um Brexit?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu