fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Tímamót hjá íslensku verkalýðshreyfingunni – Fyrsti leigjandinn hjá Bjargi íbúðafélagi fékk afhent í dag

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 20. júní 2019 21:00

Katrín Einarsdóttir tók við lyklinum að fyrstu íbúð Bjargs sem fer í útleigu við hátíðlega athöfn í gær. Mynd-BSRB

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarg íbúðafélag fagnaði tímamótum í starfsemi félagsins í dag þegar fyrsti leigjandi félagsins fékk afhenta lyklana að íbúð við Móaveg í Grafarvogi. Alls fá 68 leigjendur afhentar íbúðir í júní og júlí, við Móaveg og í Asparskógum á Akranesi.

Það var Katrín Einarsdóttir, einstæð tveggja barna móðir, sem fékk afhenta lykla að fyrstu íbúðinni sem fer í útleigu. Hún hefur búið um nokkurt skeið í einu herbergi heima hjá foreldrum sínum ásamt börnum sínum, sem eru fjögurra og tíu ára gömul, og því kærkomið að komast í nýja íbúð hjá Bjargi, samkvæmt tilkynningu.

Bjarg íbúðafélag var stofnað af Alþýðusambandi Íslands og BSRB árið 2016 með það að markmiði að byggja upp leiguhúsnæði fyrir tekjulægri félagsmenn þessara heildarsamtaka launafólks. Alls eru nú 563 íbúðir í byggingu á vegum félagsins og 490 til viðbótar í hönnunarferli.

Bjarg áformar að halda uppbyggingu húsnæðis áfram í samræmi við þörf og fjármagn. Sveitarfélög vinna húsnæðisáætlanir til að meta þörfina og leggur Bjarg áherslu á að eiga í góðu samstarfi við þau um frekari uppbyggingu á komandi árum.

Um 1.150 félagsmenn ASÍ og BSRB eru nú á biðlista eftir íbúðum svo ljóst er að þörfin fyrir leiguhúsnæði til langs tíma á hagkvæmu verði er mikil.

„Það er virkilega ánægjulegt að sjá hér í dag afraksturinn af þeirri miklu vinnu sem unnin hefur verið á þeim þremur árum sem liðin eru frá því Bjarg var stofnað. Uppbygging félagsins sýnir að það er vel hægt að byggja upp leigufélög hér á landi sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Nú eru fyrstu leigjendurnir að flytja inn og við hlökkum til að bjóða mun fleiri velkomna í hópinn á komandi mánuðum og árum,“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

„Verkalýðshreyfingin hefur enn og aftur tekið frumkvæði að því að bjóða hagkvæmari íbúðir fyrir vinnandi fólk á Íslandi. Það er afar ánægjulegt að sjá þetta verkefni verða að veruleika og ég veit að Bjarg mun gera fjölda fólks kleift að búa í mannsæmandi húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Þetta er gleðidagur og vísir að því sem koma skal,“ sagði Drífa Snædal, forseti ASÍ við athöfnina.

Mikil uppbygging framundan

  • Framkvæmdir við 563 íbúðir eru nú í fullum gangi við Móaveg, Urðarbrunn, í Úlfarsárdal við Hallgerðargötu og í Hraunbænum í Reykjavík, sem og á Akranesi og á Akureyri.
  • Áætlað er að afhenda leigjendum 141 íbúð til viðbótar í ár eftir því sem húsnæðið verður tilbúið. Þær íbúðir eru við Móaveg, í Asparskógum og í Urðarbrunni.
  • Unnið er að hönnun 490 íbúða til viðbótar í Bryggjuhverfinu, Gelgjutanga, og Skerjafirði í Reykjavík, og í Hafnarfirði, Þorlákshöfn, Sandgerði og á Selfossi.

Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignastofnun stofnuð af Alþýðusambandi Íslands og BSRB árið 2016. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði, félagsmönnum í ASÍ og BSRB, aðgengi að hagkvæmu, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Miðað er við að greiðslubyrði leigu fari ekki yfir 25% af heildartekjum leigjenda, að teknu tilliti til húsnæðisbóta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus