fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

BSRB

Verkfalli BSRB aflýst

Verkfalli BSRB aflýst

Fréttir
10.06.2023

Ellefu aðildarfélög BSRB og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning á áttunda tímanum í morgun. Lauk þar með 14 klukkustunda samningatörn samninganefndar BSRB. Verkfallsaðgerðum 2500 félagsmanna aðildarfélaga BSRB í 30 sveitarfélögum hefur verið aflýst. Kemur þetta fram á vefsíðu BSRB. Mánaðarlaun hækka að lágmarki um 35.000 kr. og desemberuppbót á árinu 2023 verður 131.000 kr. Lesa meira

Samþykktu verkfallsaðgerðir sem hefjast 15. maí

Samþykktu verkfallsaðgerðir sem hefjast 15. maí

Eyjan
29.04.2023

Félagsmenn BSRB í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi samþykktu í dag að leggja niður störf í maí. Í tilkynningu frá BSRB segir að yfirgnæfandi meirihluti félaga í fjórum aðildarfélögum BSRB, í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi, samþykkti boðun verkfalls í atkvæðagreiðslu sem lauk nú á hádegi. Fyrstu verkfallsaðgerðir munu hefjast Lesa meira

ASÍ og BSRB stofna rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum

ASÍ og BSRB stofna rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum

Eyjan
14.10.2019

Alþýðusamband Íslands og BSRB hafa ákveðið að setja á fót rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála. Norræn heildarsamtök á vinnumarkaði starfrækja mörg hver slíkar stofnanir og er því sérstakt ánægjuefni að íslenska verkalýðshreyfingin stígi nú þetta stóra skref. En ekki eru fordæmi fyrir því hér á landi að samtök Lesa meira

Segja skerðingar í fjárlagafrumvarpi veikja almannaþjónustu

Segja skerðingar í fjárlagafrumvarpi veikja almannaþjónustu

Eyjan
07.10.2019

Forsendur fjárlagafrumvarpsins sem er til umfjöllunar á Alþingi byggja á kaupmáttarrýrnun launa ríkisstarfsmanna og niðurskurði til mikilvægra málaflokka sem mun valda meira álagi á starfsfólk sem starfar nú þegar undir of miklu álagi og grafa undan þjónustunni. Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn BSRB um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Í tilkynningu frá BSRB segir að áformaður niðurskurður Lesa meira

BSRB krefur stjórnvöld um meiri skattheimtu og styttri vinnuviku

BSRB krefur stjórnvöld um meiri skattheimtu og styttri vinnuviku

Eyjan
13.09.2019

Formannaráð BSRB fundaði í dag og samþykkti tvær ályktanir. Ráðið skorar á stjórnvöld að ganga án frekari tafa að kröfum bandalagsins um styttingu vinnuvikunnar í yfirstandandi kjaraviðræðum og telur það fullkomlega óásættanlegt hversu hægt hefur gengið í viðræðunum fram að þessu. Þá fagnar formannaráðið lækkandi álögum á tekjulægstu hópana í fjárlagafrumvarpinu og kallar eftir því Lesa meira

BSRB berst fyrir styttingu vinnuvikunnar – Kjaraviðræður þokast hægt og tímamörkin fyrir bí

BSRB berst fyrir styttingu vinnuvikunnar – Kjaraviðræður þokast hægt og tímamörkin fyrir bí

Eyjan
11.09.2019

Kjaraviðræður BSRB við viðsemjendur þokast hægt, samkvæmt tilkynningu frá BSRB. Enn á eftir að leysa úr stórum ágreiningsmálum á borð við styttingu vinnuvikunnar og jöfnun launa milli markaða. Kjarasamningar flestra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá því í byrjun apríl og viðræður við viðsemjendur staðið yfir síðan. BSRB fer með samningsumboð í ákveðnum málaflokkum en aðildarfélög Lesa meira

BSRB: Engin rök fyrir einkavæðingu Íslandspósts

BSRB: Engin rök fyrir einkavæðingu Íslandspósts

Eyjan
27.06.2019

„Engin rök eru fyrir einkavæðingu á póstþjónustu enda á hún að vera órjúfanlegur hluti af almannaþjónustunni“ segir í tilkynningu frá  BSRB. Bandalagið mótmælir harðlega hugmyndum fjármála- og efnahagsráðherra um að einkavæða Íslandspóst ohf. í bréfi sem framkvæmdastjóri bandalagsins hefur sent ráðherra. Bréfið er sent í kjölfar ummæla Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra um að fljótlega Lesa meira

Tímamót hjá íslensku verkalýðshreyfingunni – Fyrsti leigjandinn hjá Bjargi íbúðafélagi fékk afhent í dag

Tímamót hjá íslensku verkalýðshreyfingunni – Fyrsti leigjandinn hjá Bjargi íbúðafélagi fékk afhent í dag

Eyjan
20.06.2019

Bjarg íbúðafélag fagnaði tímamótum í starfsemi félagsins í dag þegar fyrsti leigjandi félagsins fékk afhenta lyklana að íbúð við Móaveg í Grafarvogi. Alls fá 68 leigjendur afhentar íbúðir í júní og júlí, við Móaveg og í Asparskógum á Akranesi. Það var Katrín Einarsdóttir, einstæð tveggja barna móðir, sem fékk afhenta lykla að fyrstu íbúðinni sem Lesa meira

Formaður BSRB: „Ég veit ekki með ykkur en ég er komin með algerlega nóg“

Formaður BSRB: „Ég veit ekki með ykkur en ég er komin með algerlega nóg“

Eyjan
01.05.2019

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, hélt ræðu á Ingólfstorgi  í dag á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins. Ræðan er birt í heild sinni hér að neðan: „Kæru félagar – Til hamingju með daginn! Það er mér mikill heiður að standa hér í dag, með ykkur öllum. Við stöndum hér í dag – saman – til að berjast Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af

Hartman í Val