fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Tæknifræðinám HÍ hefst í Menntasetrinu við Lækinn

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 17. ágúst 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hafnarfjarðarbær og Háskóli Íslands hafa komist að samkomulagi um að skólinn komi upp aðstöðu fyrir tæknifræðinám í Menntasetrinu við Lækinn nú í haust. Bæjarráð samþykkti samninginn á fundi sínum í gærmorgun. Tæknifræðikennslan mun hefjast af fullum þunga núna í haust í Hafnarfirði en námið hafði áður verið í samstarfi við Keili í Ásbrú á Reykjanesi segir í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.

Hjá Keili hefur nám tengt flugi og ferðaþjónustu vaxið á undanförnum árum og á sama tíma einnig kennsla í tæknifræði. Háskóli Íslands sá tækifæri í því að flytja tæknifræðikennsluna og helst nær höfuðborginni. Nemendurnir koma bæði frá höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjunum og því þótti Hafnarfjörður ákjósanleg staðsetning. Eftir að erindi frá Háskólanum um mögulegt húsnæði í Menntasetrinu við Lækinn barst í sumar, fól bæjarráð bæjarstjóra að ganga til viðræðna við forsvarsmenn Háskólans hið fyrsta.

,,Þetta er mjög spennandi þróun í námsframboði í Hafnarfirði. Við erum nú þegar með Tækniskólann hér í bænum og fögnum því mjög að fá tæknifræðideild Háskóla Íslands líka. Aukið framboð til náms og ný menntastofnun af þessu tagi mun án efa hafa jákvæð áhrif á mannlíf í Hafnarfirði, auðvelda hafnfirskum nemendum að hefja tæknifræðinám og svo er ánægjulegt að gamli Lækjarskóli haldi áfram að gegna sínu hlutverki sem menntasetur,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri um komu Háskólans til Hafnarfjarðar.

Kennslan fer fram á þriðju hæð Menntasetursins og öll kennslan nema efnafræði mun fara þar fram strax í upphafi en stefnt er að því að koma upp aðstöðu fyrir slíka kennslu í framhaldinu þannig að allt nám tæknifræðinnar verði kennt í Hafnarfirði. Um það bil 50 nemendur hefja nám í haust en með aðstöðunni í Menntasetrinu við Lækinn verður hægt að efla námið og fjölga nemendum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn