fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Eyjan

Borgarfulltrúum verður að óbreyttum lögum fjölgað úr 15 í 23 til 31 að vori

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 9. september 2017 12:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líf Magneudóttir forseti borgarstjórnar. Mynd/Sigtryggur Ari

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum sem tóku gildi í byrjun árs 2011 þá eiga sveitarfélög þar sem búa yfir hundrað þúsund manns að hafa 23 til 31 fulltrúa í sveitarstjórn.

Reykjavík hefur um árabil verið yfir þessum mörkum og hefði ofangreindum lögum samkvæmt átt að fjölga sínum fulltrúum úr 15 í 23 til 31 við síðustu sveitarstjórnarkosnignar 2014.

Það gerðist hins vegar ekki þar sem borgin nýtti sér bráðabirgðaákvæði í sveitarstjórnarlögunum. Samkvæmt því var svona stórum sveitarfélög ekki  skylt að breyta fulltrúafjölda fyrr en við aðrar kosningar frá gildistöku laganna. Borgarfulltúar urðu þannig áfram 15 talsins á því kjörtímabili sem nú rennur brátt skeið sitt á enda. Við næstu sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 25. maí í vor mun hins vegar að óbreyttu renna endanlega úr stundaglasinu. Fjölga verður borgarfulltrúum.

Málið hefur verið umdeilt. Meðal annars skrifuðu Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og Sigríður A. Andersen þingmaður sama flokks og núverandi dómsmálaráðherra gegn fjölgun borgarfulltrúa í blaðagrein fyrir réttu ári síðan.

Sjá grein: Vinstri menn vilja fjölga borgarfulltrúum.

Málið var til umföllunar í borgarstjórn Reykjavíkur í sumar. Þar var tekin fyrir tillaga forsætisnefndar um fjölda borgarfulltrúa.

Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna og forseti borgarstjórnar Reykjavíkur var gestur Péturs Gunnlaugssonar í síðdegisþætti Útvarps Sögu í liðinni viku. Þar spurði Pétur hana um þetta mál. Líf svaraði:

Eins og lögin eru núna, þá ber okkur skylda til þess að fjölga sætunum upp í 23 og þau [lögin] hafa ekkert breyst.

Þannig verður að öllu óbreyttu barist um alla vega 23 stóla í ráðhúsi Reykjavíkur fyrir næstu kosningar sem verða sem fyrr segir 25. maí næstkomandi.

Hér má heyra viðtal Péturs Gunnlaugssonar á Útvarpi Sögu við Líf Magneudóttur forseta borgarstjórnar í heild sinni:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Segir að Heiða hyggi á hefndir gegn Pétri

Segir að Heiða hyggi á hefndir gegn Pétri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans?

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Þetta var fyrirsjáanlegt

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Þetta var fyrirsjáanlegt