fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

„Óboðlegt fyrir fyrirtæki og heimili í landinu að halda stýrivöxtum óbreyttum“

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 23. ágúst 2017 10:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins segja það óboðlegt fyrir fyrirtæki og heimili í landinu að halda stýrivöxtum óbreyttum. Seðlabanki Íslands tilkynnti í morgun ákvörðun peningastefnunefndar um að stýrivextir verði áfram 4,5%. Fram kom í yfirlýsingu peningastefnunefndar að þrátt fyrir að verðbólga hafi reynst minni en spár bankans gerðu ráð fyrir þá ríki óvissa um verðbólguhorfur.

Sjá einnig: Stýrivextir óbreyttir

Segja Samtök atvinnulífsins það vekja athygli að sérstaklega sé tiltekið í yfirlýsingunni að vísbendingar eru um að breytingar gætu verið framundan í utanríkisviðskiptum og á húsnæðismarkaði:

Ekki verður betur séð en að peningastefnunefndin sé að gefa til kynna að það sé að hægja á hagkerfinu. Ákvörðunin veldur vonbrigðum þar sem gott tækifæri var til staðar til að halda áfram lækkun vaxta, styðja við hagkerfið og draga úr vaxtamun við útlönd. Áhugavert er að rifja upp að á vaxtaákvörðunarfundinum í júní síðastliðnum kusu allir nefndarmenn að lækka vexti og vildu tveir meðlimir lækka vexti meira en raunin varð. Talsverðar sviptingar eru því að eiga sér stað milli vaxtaákvörðunarfunda,

Már Guðmundsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar. Mynd/Sigtryggur Ari

segir í tilkynningu frá SA. Seðlabankinn virðist staðráðinn í því að halda raunvaxtastiginu háu og nú séu meginrök fyrir óbreyttum vöxtum að raunvaxtastigið hafði lækkað. Mikilvægt sé að hafa í huga að verðbólga hafi verið undir markmiði samfleytt í 42 mánuði og Seðlabankinn hafi kerfisbundið spáð meiri verðbólgu en hafi orðið, því sé aðhaldið meira en upphaflega hafi verið lagt upp með:

Ekki verður betur séð en að gengisveiking krónunnar sé meginskýringin að baki óbreyttu vaxtastigi þrátt fyrir að flestar undirliggjandi hagstærðir gefi tilefni til annars. Það er eðlilegt að spurt sé hvað gerist þegar góðærinu lýkur og efnahagsslaki myndast, krónan veikist og verðbólguhorfur versna – mun Seðlabankinn þá lækka vexti verulega? Það má efast um það.

Segja samtökin að með einum hæstu raunvöxtum í heimi og innflæðishöft við lýði sé verið að grafa undan efnahagslegu jafnvægi. Vaxta og haftastefna Seðlabankans dragi úr fjárfestingu og hvata til nýsköpunar. Á sama tíma og lífeyrissjóðir og íslensk fyrirtæki  kjósi að fjárfesta erlendis eftir að hafa verið lokuð innan hafta í átta ár þá séu hömlur settar á erlenda fjárfestingu inn í landið

Það er óboðlegt fyrir fyrirtæki og heimili í landinu að halda stýrivöxtum óbreyttum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 2 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun