fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Ellert ráðinn fjármálastjóri hjá Merkjaklöpp

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 22. nóvember 2024 11:29

Ellert Jón Björnsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Merkjaklöpp ehf. á Akranesi  hefur ráðið Ellert Jón Björnsson í stöðu fjármálastjóra fyrirtækisins og hefur hann þegar hafið störf, eins og segir í tilkynningu.

Ellert er borinn og barnfæddur Skagamaður og lauk meistaragráðu í fjármálum frá Viðskiptaháskólanum í Árósum í Danmörku árið 2012. Ellert hefur látið sig samfélagsmál varða ásamt því að taka þátt í félagsstörfum og hann situr bæði í stjórn Fjölbrautarskóla Vesturlands og knattspyrnudeildar ÍA sem hann lék reyndar með á yngri árum og varð m.a. Íslandsmeistari árið 2001. 

„Ég er mjög ánægður með að vera genginn til liðs við Merkjaklöpp og hlakka til að nýta mína þekkingu í þeim verkefnum sem fyrirtækið er nú þegar með í gangi og hefur á prjónunum. Það má segja að ég sé extra peppaður þar sem félagið er að vinna að mjög framsækinni uppbyggingu í mínum gamla heimabæ og það eru virkilega spennandi tímar fram undan,“ segir Ellert Jón Björnsson.

Merkjaklöpp er framsækið fyrirtæki staðsett á Akranesi sem hefur það að sérstöku markmiði að láta til sín taka í skipulagsmálum og mannvirkjagerð á Íslandi. Merkjaklöpp á og rekur ýmis dótturfyrirtæki sín í þágu settra markmiða sinna, má þar nefna fyrirtækin Folium fasteignafélag og Keili ehf. en saman sérhæfa fyrirtækin sig í framkvæmdaráðgjöf og stýriverktöku við mannvirkjagerð á Íslandi. Fyrirtækin þjónusta þá einnig önnur fyrirtæki og sveitarfélög við þróun fasteignaverkefna, fjármögnun, markaðssetningu, skipulagsmál o.fl.

„Það er okkur mikill fengur að fá Ellert til liðs við okkur en hann kemur hér inn til okkar á mikilvægum tíma og mun hann gegna lykilhlutverki í áframhaldandi vexti Merkjaklappar-samstæðunnar. Ellert kemur til með að stýra fjármálasviði Merkjaklappar, en þar með stýrir hann þá einnig fjármálasviði dótturfélaga okkar, Folium fasteignafélags og Keilis-félaganna. Ellert er mörgum kunnur þar sem hann hefur látið vel til sín taka í bransanum og fjármálastýringu fyrirtækja en við horfum auðvitað sérstaklega líka til þess að Ellert er alvöru Skagamaður með farsælan feril úr fótboltanum undir belti á Skipaskaga. Hans verðmæta þekking og reynsla, jafnt innan vallar sem utan, kemur til með að nýtast okkur vel við að ná okkar settu markmiðum og við hlökkum mikið til að vinna með Ellerti,“  segir Guðmundur Sveinn Einarsson, stjórnarformaður Merkjaklappar.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast