fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Seldu fyrir mistök miða á fyrsta farrými á spottprís

Pressan
Þriðjudaginn 27. ágúst 2024 06:30

Vél frá Qantas.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um 300 viðskiptavinum ástralska flugfélagsins Qantas tókst nýlega að kaupa sér miða á fyrsta farrými á broti af venjulegu miðaverði.

Svo virðist sem mistök hafi verið gerð í forritun og varð það til þess að sætin voru seld á spottprís. Qantas hefur nú boðið kaupendunum endurgreiðslu eða miða á viðskiptafarrými í staðinn fyrir miðana á fyrsta farrými.

Um flug á milli Ástralíu og Bandaríkjanna er að ræða og voru miðarnir seldir með allt að 85% afslætti.

Átta klukkustundir liðu þar til mistökin uppgötvuðust og náðu 300 manns að nýta sér þetta ótrúlega verð.

Margir töldu sig hafa dottið í lukkupottinn með að geta keypt miða á fyrsta farrými fyrir lítið fé. Miðar á fyrsta farrými veita aðgang að betri stofum á flugvöllum, kampavín, stórt sæti og svefnaðstöðu um borð í flugvélunum og fleira sem farþegum á almennu farrými stendur ekki til boða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér