Ísland er að mörgu leyti besta land í heimi, eða Stórasta land í heimi eins og fyrrum forsetafrú Dorrit Moussaieff komst svo vel að orði um árið.
En hvað vantar á Íslandi? Mögulega fjölmargt ef allir væru spurðir því sitt sýnist hverjum hvort sem þeir hafa aldrei farið af landi brott eða heimsótt og jafnvel búið erlendis um tíma þar sem viðkomandi hefur kynnst ólíkri menningu, mat, lífsstíl og svo framvegis en hér finnst á Fróni.
Þessi spurning, Hvað vantar á Íslandi?, varð að skemmtilegum þræði á Reddit í gær og svörin jafn ólík og þau voru mörg. Veðurfar, samgöngur, netverslanir, afþreying, matur, þjónusta í göngufæri og fleira var á meðal svara.
Spurt er: „Hvað vantar á Íslandi? Hvað vantar þig persónulega sem myndi bæta þitt eigið líf á Íslandi? Ekki „betri samgöngur, lægri vexti“ það eru hlutir sem eru ræddir hérna dagsdaglega. Hvaða þjónustu eða vöru hefur þú notast við eða átt í öðrum löndum sem þér finnst galið að sé ekki hér. Getur verið allt frá In&Out hamborgurum, Wallmart, yfir í Uber, Bandaríska netflix eða lítið Pawn Shop.“
Kíkjum á nokkur svör.
„Flösku/dósa vélar í matvörubúðum þar sem þú getur skilað þeim þar og fengið pening beint fyrir. Þetta er svo einfalt fyrirbrigði í mörgum öðrum Evrópulöndum.“ Aðrir segjast muna eftir slíkum vélum í verslunum Hagkaupa og Samskip í Keflavík.
„Að það sé sól allt sumarið.“
„Lest.“ „Sammála. Ég vil bara góðar almenningssamgöngur almennt. Fleiri, ódýrari og áreiðanlegri strætóferðir, sporvagna, neðanjarðarlestir, lestir. Bara hvað sem er svo fólk geti komist frá A til B án þess að þurfa að keyra bíl eða hjóla innan um bíla sem hata hjól.“ Sá þriðji bendir á að þjóðin sé of fámenn fyrir lestarkerfi, það sé ótrúlega dýrt að koma því upp og viðhalda. Borgarlína sé málið, sjálfkeyrandi rafmagnsstrætóar með meiri breidd af stoppum sé hagkvæmt og sniðugt. Einn bendir á að ferðafjöldinn sé nægur til að réttlæta lestarkerfi, svo lengi sem það sé tengt við Keflavíkurflugvöll.
Einn tekur undir lestarhugmyndina og segist myndu ferðast meira um landið ef hér væri lest. Að auki segir viðkomandi að landann vanti skynsemi: „af hverju er verið að fræsa þegar morgunumferð á sér stað. Af hverju er verið að ferja sumarbústaði á trukkum kl 16. Þegar umferð er mest.“
Einn vill skemmtigarð/vatnsrennibrautagarð og segir Fjölskyldu- og húsdýragarðinn ekki teljast með. Ljóst er að innanhúss vatnsrennibrautagarður fellur í kramið hjá fleiri á þræðinum.
Annar er með nýstárlega hugmynd og leggur til að tæma undir hana sundlaug sem ekki er lengur í notkun: „Skylmingaleikvang. Blöndum saman HEMA, MMA og húsdýragarðinum.“
„Mig langar rosalega að opna innandyra hundasvæði. Með nóg af afþreyingu, nammi sjálfsala/nammibar, og fleira.“
Landsbyggðin lætur til sín heyra á þræðinum. Eyjamaður vill betri samgöngur, auk ódýrari sálfræðings og tannlæknaþjónustu. Atvinnulíf á landsbyggðinni, til dæmis Akranesi. En nefna má að nýlega misstu 128 starfsmenn hátæknifyrirtækisins Skaginn 3X vinnuna eftir að fyrirtækið var tekið til gjaldþrotaskipta.
Matgæðingur vill alvöru úrval af veitingastöðum, ekki bara annað hvort skyndibita eða dýra veitingastaði. „Og þó ég sé enginn baráttumaður um áfengi í matvöruverslanir, þá finnst mér geggjað næs að geta stokkið út í búðina á horninu til að ná í eina rauðvín þegar maður fer óvart að elda eitthvað gúmmelaði.“
Ljóst er að maginn talar fyrir marga því annar vill alvöru veitingastað sem opnar eldsnemma, eins og til dæmis Wafle House. Margir telja upp veitingastaði sem aldrei hafa verið starfræktir hérlendis, eða aðra sem hafa komið og farið eins og McDonalds.
„Netverslun frá útlöndum án þess að þurfa að borga marga þúsundkalla í umsýslu og tolla.“ Annar er til í samdægurs heimsendingu frá Amazon og bendir á að þess var ekki krafist að svörin væru raunsæ.
„Risahöfn í Finnafirði, kannabis í lyfjaverslunum, meiri skógrækt (sérstaklega á Reykjanesinu), almennilegt Go-Kart“
Einn vill sjá fólk í ábyrgðarstöðum taka ábyrgð: „Ef manneskja er að fá há laun vegna þess að þau eru í ábyrgðarstöðu verður sú manneskja taka ábyrgð ef eitthvað gerist. Aldrei heyrt það gerast á Íslandi.“
Annar vill verðstjórnun á húsnæðismarkaði. Og sá þriðji vill: „Samfélagslega hugarfarsbreytingu það sem fólk hættir að hugsa um bara um sig og hugsar um samfélagið sem heild og hvernig er hægt að gera það betra.“
Annar tekur undir samheldnina í samfélaginu og bætur um betur: „Samheldni samfélags. Skipulagsmál bæja er fáránlegt. Þétting byggðar svo óþörf og bara skerðing lífsgæða. Á ekkert að vera grænt nema arfinn á húsþökum? Það að okkar litla höfuðborg samanstendur af fimm bæjarfélögum er fáránlegt og óþarflega dýrt. Einn stærsti vandi höfuðborgarinnar eru samgöngur sem ekki eru hér ræddar, helsta svæði atvinnu er miðbærinn, helstu búsvæðin þar utan. Þetta veldur óþarfa tímasóun meirihluta byggðar en þar sem öll þessi bæjarfélög vilja hafa atvinnusvæði og búsvæði endar þetta í kjánalegasta mosiac af byggð þó víða væri leitað. Fella þessi bæjarfélög og hafa eitt fyrir höfuðborgina, skipuleggja byggð með meira en þrjú ár í huga. Bæta við frekar en að fækka grænum svæðum (byggja út og huga að útisvæðum). Stækka stofngötur frekar en að reyna að merja í landann að vera bíllaus. Heildarsýn frekar en skammsýni og litla kónga á hverju götuhorni.“
Einn óskar eftir einu eldgosi í viðbót og mögulega er hann sá sem fyrst verður að ósk sinni.
„Þessi þráður: Við viljum lest! Við viljum búðir í göngufæri! Við viljum ódýrara húsnæði! Við viljum ódýrari og fjölbreytnari skyndibita!En nei bannað að byggja þétt. Bara breyða meira úr borginni takk, allt einbýlishús og ekkert mixed zoning. Delusional fólk á þessu landi,“ segir einn í lokin sem líst greinilega ekkert á svör á þræðinum, en kemur ekki með neinar uppástungur sjálfur.
Viðkomandi er svarað með sleggju: „Það er eins og mismunandi fólk hafi ólíkar skoðanir!“