fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Pressan

Vill ekki banna kynjaskipta sundkennslu og sundtíma

Pressan
Fimmtudaginn 11. apríl 2024 07:00

Mynd/Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að Kaare Dybvad Bek, ráðherra útlendinga- og aðlögunarmála í Danmörku, hafi hvatt borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn til að banna kynjaskipta sundkennslu og sundtíma hefur Mia Nyegaard, borgarstjóri menningar- og frístundarmála, ekki í hyggju að verða við þessu.

Hún skýrði frá þessu í samtali við Berlingske og benti á að félögum og samtökum sé frjálst að starfa í Danmörku og að það sé á valdi hvers sveitarfélags að ákveða hvort ákveðin félög og samtök fái að nota þá aðstöðu og mannvirki sem sveitarfélögin eiga.

„Það eru sveitarfélögin sem ákveða hvort félög og samtök megi nota opinber mannvirki. Ef hann vill hafa það öðruvísi, verður hann að fá þingið til að setja lög um það,“ sagði hún.

Ummæli hennar falla í kjölfar fyrirspurnar frá útlendinga- og aðlögunarráðuneytinu til sveitarfélaga landsins um hversu mikið sé um að boðið sé upp á kynjaskipta sundkennslu og/eða sundtíma í opinberum sundlaugum.

Fyrirspurnin var send út í kjölfar tillögu frá í maí á síðasta ári um að banna að boðið sé upp á kynjaskipta sundkennslu og sundtíma.

Af 98 sveitarfélögum hafa 92 svarað fyrirspurninni og er niðurstaðan að í 12 þeirra er boðið upp á kynjaskipta sundkennslu og sundtíma.

Ráðherrann hefur látið hafa eftir sér að það sé „ódanskt“ að bjóða upp á kynjaskipta tíma í sundlaugum landsins og að þetta sé „miðausturlensk“ menning sem sé að skjóta rótum í dönsku samfélagi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Klikkaðasta hugmyndin sem nokkur hefur nokkru sinni fengið“ – Gæti bjargað okkur í þriðju heimsstyrjöldinni

„Klikkaðasta hugmyndin sem nokkur hefur nokkru sinni fengið“ – Gæti bjargað okkur í þriðju heimsstyrjöldinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjársjóðsleitin gekk fullkomlega upp – Síðan reið áfallið yfir leitarmenn

Fjársjóðsleitin gekk fullkomlega upp – Síðan reið áfallið yfir leitarmenn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skaut lögreglumann með lásboga

Skaut lögreglumann með lásboga
Pressan
Fyrir 3 dögum

Stórtíðindi af bóluefnum – Nýtt bóluefni veitir vernd gegn kórónuveirum sem eru ekki enn komnar fram á sjónarsviðið

Stórtíðindi af bóluefnum – Nýtt bóluefni veitir vernd gegn kórónuveirum sem eru ekki enn komnar fram á sjónarsviðið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Talíbanar vilja fá fleiri ferðamenn til landsins

Talíbanar vilja fá fleiri ferðamenn til landsins
Pressan
Fyrir 4 dögum

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“