fbpx
Þriðjudagur 05.ágúst 2025
Pressan

Svona sá goðsagnarkennda spákonan Baba Vanga fyrir sér næsta ár – Einræðisherra myrtur, tíðari hryðjuverkaárásir en líka von fyrir sjúklinga

Pressan
Laugardaginn 4. nóvember 2023 22:00

Baba Vanga hefur verið kölluð Nostradamus Balkan-landanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin blinda og goðsagnarkennda spákona Baba Vanga hefur verið kölluð „Nostradamus Balkanlandanna“. Baba Vanga missti sjónina á barnsaldri en fór að sjá skýrar sýnir sem hafa smátt og smátt vakið heimsathygli. Meðal annars er hún sögð hafa séð fyrir sér Tsjernobyl-slysið, dauða Díönu prinsessu, hryðjuverkin 11. september, fall Sovétríkjanna og það hræðilegasta af þessu öllu, Brexit.

Baba Vanga lést árið 1996, áttatíu og fjögurra ára að aldri, en spádómar hennar halda áfram að vekja undrun fólks og hún sá ýmislegt fyrir sér varðandi næsta ár, 2024. Breska blaðið Mirror fjallaði í dag um sjö spádóma Baba Vanga fyrir næsta ár.

1. Dauði Pútíns

Baba Vanga sá fyrir sér að Vladimir Pútín, forseti Rússlands, yrði fórnarlamb banatilræðis á næsta ári.

2. Fleiri hryðjuverk og árás með efnavopnum

Baba Wang sá fyrir sér að aukning yrði á árásum hryðjuverkamanna í Evrópu á á næsta ári en sömuleiðs að stórt ríki myndi gera tilraunir með efnavopn, eða jafnvel gera efnavopnaárása á næsta ári.

3. Efnahagslegt hrun

Baba Vanga sá fyrir sér að efnahagslíf heimsins yrði strembið á næsta ári. Skuldir myndu aukast og mikil spenna milli ríkja heimsins hefði slæm áhrif. Þá héldu stjórnartaumarnir í efnahagsmálum áfram að færast frá Vesturlöndum til austurs og það myndi valda skjálftum.

4. Skelfilegar afleiðingar loftslagsbreytinga

Baba Vanga sá fyrir sér nokkra skelfilega veðurfarsatburði og hamfarir á næsta ári. Þar gæti loftsteinn komið við sögu.

5. Árásir á innviði

Spákonan sá fyrir sér að aukning  yrði á árásum á mikilvæga innviði eins og orkuver og vatnsverksmiðjur. Sú ógn myndi varða við þjóðaröryggi í nokkrum löndum.

6. Tækniframfarir

Baba Vanga sá ekki bara fyrir sér hörmungar því hún á að hafa séð fyrir sér miklar tækniframfarir á næsta ári, framfarir sem túlkaður eru sem mögulega á sviði skammtatölva. Nái það fram að ganga gæt orðið bylting framundan varðandi framþróun gervigreindar.

7. Lækning við Alzheimer?

Hin alsjáandi spákona sá fyrir sér miklar framfarir á sviði læknisfræði á næsta ári og sögulegar uppgötvanir gætu litið dagsins ljós í baráttunni við ýmsa sjúkdóma. Þannig gæti árið 2024 orðið byltingarkennt í baráttunni við Alzheimer sem og í glímunni við einhverjar tegundir krabbameina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Geta hundar verið myrkfælnir?

Geta hundar verið myrkfælnir?
Pressan
Í gær

Dýnur, kaffivélar og uppstoppað svínshöfuð – Ótrúlegustu hlutum er stolið frá lúxushótelum

Dýnur, kaffivélar og uppstoppað svínshöfuð – Ótrúlegustu hlutum er stolið frá lúxushótelum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ghislaine Maxwell flutt í lágöryggisfangelsi með ýmsum fríðindum – „Þegar þú ferð á stað eins og Bryan, líður þér eins og þú sért í Disneylandi“

Ghislaine Maxwell flutt í lágöryggisfangelsi með ýmsum fríðindum – „Þegar þú ferð á stað eins og Bryan, líður þér eins og þú sért í Disneylandi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gýs minna upp úr bjórdósinni ef slegið er á lok hennar áður en hún er opnuð?

Gýs minna upp úr bjórdósinni ef slegið er á lok hennar áður en hún er opnuð?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Slepptu gervigreind lausri í fyrirtæki – Forstjórinn fékk að finna fyrir henni

Slepptu gervigreind lausri í fyrirtæki – Forstjórinn fékk að finna fyrir henni
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Þetta er ákall um hjálp“ – Ítalskir bændur rukka ferðamenn fyrir göngu um vinsælan stíg

„Þetta er ákall um hjálp“ – Ítalskir bændur rukka ferðamenn fyrir göngu um vinsælan stíg
Pressan
Fyrir 4 dögum

Norður-Kórea útilokar afkjarnavopnun og skorar á Bandaríkin að sætta sig við orðinn hlut

Norður-Kórea útilokar afkjarnavopnun og skorar á Bandaríkin að sætta sig við orðinn hlut
Pressan
Fyrir 4 dögum

16 sprengjur, 83 skotvopn, 11.000 skot og 130 skothylkjageymar og fernt handtekið

16 sprengjur, 83 skotvopn, 11.000 skot og 130 skothylkjageymar og fernt handtekið