Svo gæti farið að Diljá Pétursdóttir sitji eftir í riðlinum á undanúrslitakvöldi Eurovision í Liverpool þann 11. maí næstkomandi.
Sú verður að minnsta kosti raunin ef marka má samantekt Eurovisionworld.com á veðbönkum.
Diljá keppir á seinna undanúrslitakvöldinu og eru margir á því að lag hennar, Power, sé nógu gott til að komast að minnsta kosti áfram á úrslitakvöldið. Ef marka má veðbanka er framlag Íslands aftur á móti í fjórtánda sæti af sextán þátttökuþjóðum á undanúrslitakvöldinu.
Þetta segir þó ekki alla söguna og eru líkurnar á að Diljá komist áfram metnar 40% – sum sé alveg ágætar. San Marínó (19%) og Rúmenía (18%) eru fyrir neðan Ísland en þjóðir á borð við Pólland (48%), Belgíu (55%) og Danmörk (58%) í næstu sætum fyrir ofan okkur.
Líkurnar á að Austurríki fari áfram eru metnar yfir 90 prósent og þá eru líkurnar á að Ástralía, Georgía, Kýpur og Armenía fari áfram metnar yfir 80%.
Diljá er í 24. sæti yfir þá sem taldir eru eiga mestu möguleikana á að vinna keppnina. Þó að líkurnar á að Danmörk, með hinn færeyska Reiley í broddi fylkingar, séu meiri en okkar Íslendinga á undanúrslitakvöldinu er Diljá líklegri til að vinna sjálfa keppnina. Þar er framlag Dana í 28. sæti.
Loreen, fulltrúi Svía, er í langefsta sætinu samkvæmt veðbönkum og eru líkurnar á sigri hennar laugardagskvöldið 13. maí metnar 39%. Þar á eftir koma Finnar með 15% líkur og svo Úkraínumenn, sigurvegarnir frá því í fyrra, með 11% líkur. Norðmenn eru í fjórða sæti og Spánverjar því fimmta.