fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Heilinn býr til inflúensueinkenni

Pressan
Laugardaginn 1. apríl 2023 16:30

Heilinn er magnaður. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Slæm inflúensa getur lagt hvern sem er í bælið en það kemur kannski á óvart að í raun er það ekki sjálf sýkingin sem veldur sjúkdómseinkennunum. Það er heilinn sem veldur þeim.

Nú hafa vísindamenn hugsanlega uppgötvað ástæðuna fyrir þessu eftir því sem segir í nýrri rannsókn sem hefur verið birt í vísindaritinu Nature að sögn Videnskab.dk.

Með tilraunum á músum uppgötvuðu þeir taugafrumur neðst í hálsinum, sem eru einna bestar í að uppgötva ef veira er til staðar, og senda skilaboð til heilans um að bregðast þurfi við.

Segja vísindamennirnir að það séu þessi skilaboð sem fái heilann til að loka fyrir orku, svengd og þorsta.

Fram að þessu vissu vísindamenn ekki hvernig heilinn uppgötvar að líkaminn sé sýktur. Ein kenning var að merki frá veirusýkingu gætu borist með blóði til heilans þar sem þau gætu átt samspil við heilafrumur.

En vísindamenn gátu afsannað þessa kenningu með því að fjarlægja þá viðtaka í músaheilum, sem áttu að taka við þessum merkjum. Mýsnar breyttu ekki atferli sínu við þetta og héldu sig áfram frá mat og drykk og hreyfðu sig minna.

Það hlaut því að vera eitthvað annað sem stýrði þessum viðbrögðum og það kom vísindamönnunum á sport taugafruma aftast í kokinu, sem tengja öndunarveginn við heilann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ætla að leggja 1.200 störf niður hjá CIA

Ætla að leggja 1.200 störf niður hjá CIA
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf