fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433Sport

Tveir sænskir rýtingar komu í veg fyrir góðan íslenskan dag

433
Laugardaginn 14. janúar 2023 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var rífandi stemming á Hringbraut á föstudagskvöld þegar Bjarni Helgason blaðamaður Morgunblaðsins mætti og ræddi fréttir vikunnar hjá Benna Bó ásamt Herði Snævar Jónssyni, fréttastjóra íþrótta hjá Torgi.

A-landslið karla spilaði tvo leiki á dögunum, liðið gerði jafntefli við Eistland en tapaði með naumindum gegn Svíþjóð.

Um var að ræða hálfgert varalið enda ekki alþjóðlegir leikdagar. „Ég held að það sé aldrei gott að horfa djúp í þessi janúar verkefni,“ sagði Hörður Snævar.

„Þetta var að mörgu leyti gott gegn Svíþjóð, það eru bara tveir rýtingar í lok leiks sem kosta liðið sigur. Þetta var bara allt í lagi.“

Undankeppni Evrópumótsins hefst í mars og þá er pressa á Arnari Viðarssyni að sanna ágæti sitt með fullmannað skip.

„Mars, þá byrjar Arnar Þór að leggja vinnu sína i dóm kjósanda. Fjögur stig er lágmarkið.“

Umræðan er í heild hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carragher heldur áfram að skjóta fast á Salah – Segir hann ekki hafa lesið salinn

Carragher heldur áfram að skjóta fast á Salah – Segir hann ekki hafa lesið salinn
433Sport
Í gær

Stefán grínaðist með slaginn við Heimi Má – „Vona að ég þurfi nú ekki að fara að snupra þig og verða að einhverju meme-i“

Stefán grínaðist með slaginn við Heimi Má – „Vona að ég þurfi nú ekki að fara að snupra þig og verða að einhverju meme-i“
433Sport
Í gær

Benzema boðar óvænta endurkomu

Benzema boðar óvænta endurkomu
433Sport
Í gær

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“