fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Stoltenberg óttast að stórstyrjöld brjótist út á milli NATO og Rússlands

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 12. desember 2022 08:00

Jens Stoltenberg er framkvæmdastjóri NATO. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, kom fram í spjallþættinum, „Lindmo“ í Norska ríkisútvarpinu NRK á föstudaginn. Þar ræddi hann um hvernig Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, hefur breyst í gegnum tíðina.  Hann var einnig spurður hvað hann óttast mest í vetur.

„Ég óttast að stríðið í Úkraínu fari úr böndunum og breiðist út og verði að stórstyrjöld á milli NATO og Rússlands. Þetta er mjög alvarlega staða og það eru örlagatímar í Evrópu og þar með fyrir Noreg. Ef þetta fer úr böndunum, getur þetta endað skelfilega,“ sagði Norðmaðurinn Stoltenberg.

NATO gegnir stóru hlutverki í stríðinu í Úkraínu því bandalagið veitir Úkraínu hernaðarlega aðstoð, útvegar vopn og skotfæri og annast þjálfun úkraínskra hermanna.

Áður en Rússar réðust inn í Úkraínu kröfðust þeir tryggingar frá NATO um að Úkraínu myndi aldrei fá að ganga í NATO því það telja þeir ógna öryggi sínu. NATO hefur ekki viljað veita Rússum tryggingu fyrir þessu.

Skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu þann 24. febrúar ræddu Stoltenberg og Pútín saman í Brussel. Þá lagði Stoltenberg fram tillögu sem var ætlað að koma í veg fyrir stríð. „En á einhverjum tímapunkti koma samtöl ekki lengur að gagni. Pútín haðfi ákveðið að beita valdi og ofbeldi,“ sagði Stoltenberg í þættinum.

Stoltenberg var forsætisráðherra Noregs í byrjun aldarinnar og á sama tíma var Pútín nýkjörinn forseti Rússlands. „Þegar hann var nýkjörinn forseti árið 2000 var hann leitandi og vildi samstarf við Vesturlönd. Pútín eftir það er miklu árásargjarnari og segir sögur sem eru ekki sannar,“ sagði Stoltenberg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni