Mirror skýrir frá þessu. Fram kemur að í gegnum tíðina hafi margar rannsóknir verið gerðar á þessu og niðurstaða þeirra er nánast á einn veg. Börn erfa greind sína frá móður sinni, ekki föður.
Mirror segir að ástæðan fyrir þessu sé, samkvæmt rannsóknunum, að það er x-litningurinn sem stýrir greindinni. Konur eru með tvo x-litninga (XX) en karlar eru með einn X- og einn Y- (XY). Það eru því tvöfalt meiri líkur á að börnin erfi greindina frá móður sinni en frá föður sínum.
Rannsókn, sem var gerð á vegum Medical Research Council Social and Public Health Sciences Unit í Glasgow í Skotlandi, sýndi að greindarvísitala barna er oft mjög svipuð og greindarvísitala móður þeirra.
En það hressir kannski einhverja feður að rannsóknir hafa sýnt að greind er ekki aðeins byggð á erfðum. Psychology Spot segir að 40-60% af greind hvers einstaklings sé frá foreldrum komin (þá væntanlega aðallega móður) en restin sé áunnin í uppvextinum.
Það er því engin ástæða fyrir feður að sitja súrir úti í horni og gráta það að börnin þeirra hafi ekki erft greind sína frá þeim. Þeir geta reynt að nota sér það svigrúm sem er til að hafa áhrif á börnin á uppvaxtarárunum, til dæmis með því að leika fræðandi og þroskandi leiki með þeim.