fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Facebook-síðu Guðmundar og félaga lokað vegna „dreifingar á nekt“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 17. febrúar 2022 20:00

Guðmundur Jörundsson - Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðastliðinn desember opnaði fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson fata- og lífstílsverslunina Nebraska á Barónsstíg í miðbæ Reykjavíkur ásamt félögum sínum, þeim Benedikti Andrasyni og Kjartani Óla Guðmundssyni.

Nebraska hefur gengið afar vel síðan það opnaði en nýlega lentu eigendur staðarins í veseni. Vesenið varðar Facebook-síðu Nebraska en henni var nýlega lokað af Facebook. Ástæðan fyrir lokuninni var „dreifing á nekt“ en enga nekt var þó að finna á Facebook-síðunni. Hins vegar mátti sjá þar konu klædda í sandlitaða kápu, svo virðist vera sem vélmenni samfélagsmiðilsins hafi talið að um nakta konu væri að ræða.

Algjört vesen

„Þetta er algjört vesen,“ segir Guðmundur um málið í samtali við DV. „Við fengum bara meldingu um að við værum að brjóta staðla vegna nektar og ósæmilegra pósta. Svo kom aðvörun og við bara áfrýjuðum því strax. Innan svona tveggja klukkutíma var þá bara búið „suspenda“ okkur, það var enginn aðdragandi að þessu. Þetta eru náttúrulega allt einhverjir bottar sem maður er að tala við.“

Það var ekki bara fyrirtækjasíðan sem fékk refsingu fyrir sandlituðu kápuna, Facebook-síðum Guðmundar og Benedikts var einnig lokað vegna kápunnar. Þær voru þó opnaðar fljótlega aftur.

„Svo reyndum við að opna aðra síðu, henni var lokað líka, svo opnuðum við þriðju og svo loksins fengum við þá samband við einhverja sérfræðinga og náðum þá að tala við einhverjar raunverulegar manneskjur hjá Facebook, þá héldum við að við værum hólpnir og að þær myndu gera allt fyrir okkur. Svo kom úrskurður bara án röksemda að það væri búið að loka síðunni til frambúðar.“

Næsta skref hjá Guðmundi og félögum er einfalt, það er að reyna enn og aftur að stofna Facebook-síðu fyrir verslunina. „Sem er náttúrulega smá ærandi, maður var kominn með helling af fylgjendum á þessa síðu og búinn að byggja hana upp.“

Fleiri lent í svipuðu veseni

Guðmundur vakti athygli á málinu á Twitter-síðu sinni í dag en hann er nokkuð vinsæll á þeim miðli. Færslan vakti töluverða athygli og ljóst er að fleiri hafa lent í veseni með Facebook vegna ekki-nektar.

Fjölmiðlakonan Margrét Erla Maack segir til dæmis frá því að hennar síðu hafi verið lokað í þrjá mánuði vegna myndar sem hún birti þar. Á þeirri mynd virðist í fyrstu sem það sjáist í kynfæri en þegar nánar er að gáð má sjá að ekki er um raunveruleg kynfæri að ræða.

Kvikmyndagerðarmaðurinn Hrafn Jónsson segir svo frá því að Instagram-aðgangi sínum hafi verið lokað, hann fékk þó engar ástæður fyrir því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“
Fréttir
Í gær

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm
Fréttir
Í gær

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni
Fréttir
Í gær

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð