fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Fréttir

Vélsleða ekið á hús – Bílþjófur handtekinn

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 16. febrúar 2022 05:14

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 17.45 í gær var vélsleða ekið á hús í Mosfellsbæ. Ökumaðurinn slasaðist ekki en húsnæðið skemmdist. Á tíunda tímanum í gærkvöldi var akstur bifreiðar stöðvaður í Breiðholti en tilkynnt hafði verið um þjófnað á henni. Ökumaðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Á öðrum tímanum í nótt kom eldur upp í fyrirtæki í Hlíðahverfi. Slökkvilið slökkti eldinn og er málið í rannsókn. Á níunda tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um eld í gámi við skóla í Kópavogi. Slökkviliðið slökkti hann.

Síðdegis í gær var tilkynnt um innbrot í geymslu fjölbýlishúss í miðborginni og í fyrirtæki í Hlíðahverfi. Í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot í bifreið í Kópavogi.

Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var einn handtekinn á tíunda tímanum vegna slagsmála.

Þriggja bíla árekstur varð síðdegis í gær í Hafnarfirði. Einn ökumaður fann til eymsla eftir óhappið og fór á bráðamóttöku. Á tíunda tímanum varð árekstur tveggja bíla í Hafnarfirði og eru þeir báðir taldi ónýtir en ekki urðu slys á fólki.

Einn ökumaður var kærður fyrir að aka sviptur ökuréttindum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lést í sprengingunni í Korngörðum í morgun

Lést í sprengingunni í Korngörðum í morgun
Fréttir
Í gær

Málið gegn Stebba Jak: Brotaþoli lýsir skelfilegum afleiðingum af árásinni – Áfallastreita, örmögnun og einbeitingarskortur

Málið gegn Stebba Jak: Brotaþoli lýsir skelfilegum afleiðingum af árásinni – Áfallastreita, örmögnun og einbeitingarskortur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Yfirlýsing Fóðurblöndunnar um vinnuslysið í morgun – Þrír slösuðust, þar af einn alvarlega

Yfirlýsing Fóðurblöndunnar um vinnuslysið í morgun – Þrír slösuðust, þar af einn alvarlega
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fær innan við 400 þúsund á mánuði eftir skatt – „Horfðu í augun á mér og segðu mér að ég sé vandamálið“

Fær innan við 400 þúsund á mánuði eftir skatt – „Horfðu í augun á mér og segðu mér að ég sé vandamálið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ragnar Bragason ósáttur við Hlyn lögreglumann og segir ráðherra éta upp hugmyndafræðina eftir hann – Rangfærslur og vanvirðing

Ragnar Bragason ósáttur við Hlyn lögreglumann og segir ráðherra éta upp hugmyndafræðina eftir hann – Rangfærslur og vanvirðing
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vésteinn renndi yfir kortayfirlitið og fékk áfall – „Færslur, sem fengu hárin til að rísa“

Vésteinn renndi yfir kortayfirlitið og fékk áfall – „Færslur, sem fengu hárin til að rísa“