fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Eyjan

Píratar auglýsa eftir starfsmanni þingflokks – „Konur og kvár eru sérstaklega hvött til að sækja um“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 6. desember 2021 11:14

Hluti af þingflokki Pírata.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingflokkur Pírata auglýsir eftir starfsmanni til að starfa með þingmönnum og öðru starfsfólki flokksins. Í auglýsingu sem birtist á Alfreð segir að helstu verkefni snúist um þingmálagerð, aðstoð við þingmenn í þingstörfum og nefndarstörfum, greiningarvinnu og úrlausn lögfræðilegra álitaefna, auk annarra tilfallandi verkefna.

Krafist er fullnaðarnáms í lögfræði eða sambærilegrar menntunar.

„Um er að ræða starf á skrifstofu þingflokks Pírata þar sem reynir á öguð vinnubrögð, skipulagshæfileika, frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði. Okkur vantar öfluga liðsmanneskju sem er tilbúin að starfa þétt með þingflokknum á komandi kjörtímabili. Um fullt starf er að ræða, tímabundið fram að næstu Alþingiskosningum að loknu þriggja mánaða reynslutímabili. Laun og önnur kjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags starfsmanna Alþingis. Vinnutími er breytilegur.  Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Rökstuðningur fyrir því að umsækjandi uppfylli hæfniskröfur skal fylgja umsókn. Öllum umsóknum verður svarað. Konur og kvár eru sérstaklega hvött til að sækja um,“ segir í auglýsingunni sem má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Bandaríkin lyfta löngutöng

Sigmundur Ernir skrifar: Bandaríkin lyfta löngutöng
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Séra Örn Bárður Jónsson: Var með doða í öðru heilahvelinu eftir námið

Séra Örn Bárður Jónsson: Var með doða í öðru heilahvelinu eftir námið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Skrímsladeildin stýrir nú Sjálfstæðisflokknum með hjálp önugra gamlingja

Orðið á götunni: Skrímsladeildin stýrir nú Sjálfstæðisflokknum með hjálp önugra gamlingja
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hnýtir í Sigríði Andersen og spyr hvort hún sé viljandi að misskilja eða vísvitandi að blekkja

Hnýtir í Sigríði Andersen og spyr hvort hún sé viljandi að misskilja eða vísvitandi að blekkja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigvaldi Einarsson skrifar: Krónan er fallin í stríðinu – Við eigum engan annan leik en ESB

Sigvaldi Einarsson skrifar: Krónan er fallin í stríðinu – Við eigum engan annan leik en ESB