fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Jón Baldvin svarar ítarlega fyrir „rassastrokumálið“ – „Stóðu gestir okkar einir að verki? Eða stóðu aðrir að baki?“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 1. nóvember 2021 16:42

Jón Baldvin Hannibalsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum ráðherra, hefur verið gert að sök að hafa kynferðislega áreitt Carmen Jóhannsdóttur á Spáni í júní 2018 og lauk nýlega aðalmeðferð málsins sem héraðssaksóknari höfðaði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Sjá einnig: „Jón Baldvin stendur þarna, kallar og æpir, og segir að ef við förum við með þetta í fjölmiðla þá lögsæki hann okkur“

Jón hefur ný birt pistil á vef Vísis þar sem hann fer yfir málið og þær sakir sem á hann eru bornar. Þar kallar hann mál sitt „rassastrokumál“ og segir það „sólund á pappír, tíma og fjármunum skattborgara.“

„Til upprifjunar ber að nefna helstu persónur og leikendur. Gestgjafarnir (við Bryndís), gestirnir (Laufey Ósk og Carmen Jósefa). Og ekki má gleyma handhöfum ákæruvaldsins (varasaksóknarar: Anna Barbara Andradóttir, Dröfn Kjærnested, Kolbrún Benediktsdóttir) og fulltrúi lögreglu, sem stýrði yfirheyrslum, Rannveig Einarsdóttir. Það er við hæfi, að eini karlmaðurinn, sem kemur þarna við sögu, er í hlutverki sakbornings! Alla vega fer ekki mikið fyrir karlaveldinu þarna.“

Jón Baldvin segir rannsóknarspurninguna auðvelda – hún sé hvort hann hafi snert rass Carmenar eða ekki. Þar beri honum og kæranda ekki saman sem og vitnum.

Vitnum ber ekki saman

Jón Baldvin segir tvö vitni styðja hans framburð og þeim beri saman um aðalatriði. Ákæruvaldið hafi samt ákveðið að tortryggja framburð Bryndísar Schram þar sem hún sé eiginkona sakbornings.

„En ákæruvaldið gerir engar athugasemdir við, að kærandi og eina vitnið, sem var á staðnum og styður framburð þess, eru mæðgur. Hvað þá heldur, að þrjú aukavitni voru kölluð til,þ.á.m. systir kæranda og fyrrverandi sambýlismaður. Þau eiga það líka sameiginlegt að hafa verið víðs fjarri vettvangi og geta þ.a.l. ekki borið vitni um eitt eða neitt, sem þar gerðist.“

Eftir standi eitt vitni sem sé ekki tengt Jóni Baldvini eða Carmen.

„Hugrún Auður Jónsdóttir heitir hún og eiðsvarinn vitnisburður hennar hljóðar svo:

„Ég undirrituð (nafn og kennitala) staðfesti hér með, að ég var gestur við borðhald á heimili Bryndísar og Jóns Baldvins í Salobrena, laugardaginn 16. Júní, 2018. Þegar sest var að borðum, sat Jón Baldvin mér á vinstri hönd. Ég sá því allt sem fram fór við borðhaldið. Ásakanir um, að Jón Baldvin hafi áreitt gestkomandi konu við upphaf borðhalds, eru HREINN TILBÚNINGUR OG TÓMT RUGL. Slíkt hefði ekki getað farið fram hjá mér. Þetta staðfesti ég með undirskrift minni“.“

Jón Baldvin veltir því fyrir sér hvers vegna með tilliti til framburðar Hugrúnar málinu hafi ekki verið vísað frá.

Hver hellti víninu?

Jón Baldvin fer yfir aðstæður í matarboðinu þar sem brotið á að hafa átt sér stað og bendir á að honum sé gert að sök að hafa notað hægri hönd til að strjúka rass kæranda er hún var að skenkja í glös gestanna.

„Hver trúir því, að gestkomandi kona, sem þekkir ekki til gestgjafa, rjúki til og taki ófrjálsri hendi hvítvínsflösku í eigu gestgjafa og fari að hella í glös, óumbeðin? Vill einhver ætla henni slíkan ruddaskap?“

Jón Baldvin segir það ekki standast skoðun þar sem hann hafi sjálfur hellt í glös við upphaf borðhalds.

Hann veltir upp þeirri spurningu að fyrst málinu hafi ekki verið vísað frá nú þegar, hvort ákæruvaldið sé að nota það í einhvers konar stríði gegn „feðraveldinu.“

„Þar með ætti þessu máli að vera lokið samkvæmt þeirri ófrávíkjanlegu grundvallarreglu ákæruvaldsins, að kæra ekki nema yfirgnæfandi líkur séu á sakfellingu fyrir refsiverða háttsemi. En þá vaknar spurninging: Eru konurnar – handhafar ákæruvaldsins í þessu máli – að breyta því, í ýfirlýstu stríði gegn „feðraveldinu“ svokallaða?“

Var hún kannski að drekka í sig kjark?

Jón veltir því jafnframt fyrir sér hvort það séu aðilar, aðrir en Carmen og móðir hennar, sem standa að baki kærunni.

Jón bendir á að móðir Carmenar, Laufey, sé æskuvinkona dóttur hans, Aldísar Schram, og sé flestum kunnugt um að hún hafi lengi hatað foreldra sína og fjölskyldu. Vinslit hafi þó orðið milli Laufeyjar og Aldísar þegar sú fyrrnefnda neitaði að kannast við að Jón Baldvin hafi áreitt hana.

Jón Baldvin rekur að Laufey hafi þó ræktað vináttu við Bryndísi og hann í gegnum árin og meðal annars lýst yfir stuðningi við þau eftir að Aldís sakaði föður sinn um kynferðisofbeldi.

Jón Baldvin segir einnig að Laufey hafi gengist við því fyrir matarboðið á Spáni að vera á sterkum verkjalyfjum sem hún mætti ekki drekka ofan í. Þetta umrædda kvöld hafi hún þó drukkið sterka drykki „ótæpilega“ og grunar Jóni Baldvini að það hafi valdið umskiptum hennar frá því að vera vinur þeirra í að vera á móti þeim.

„Var hún kannski að drekka í sig kjark? Allavega þarfnast það skýringa, hvernig vinarþel breyttist í einu vetfangi í svikabrigsl og bölbænir.

Sjá einnig: „Jón Baldvin, þú átt að biðja dóttur mína afsökunar. Þú káfaðir á henni. Ég sá það“

Stóðu aðrir að baki?

Jón Baldvin veltir því fyrir sér hvort að gestirnir í matarboðinu umrætt kvöld hafi komið þangað gagngert til að geta ásakað Jón Baldvin um kynferðisbrot.

„Sjálfur var ég öskureiður yfir þessari beisku blöndu af óheilindum og dónaskap, sem ekkert okkar átti von á, né taldi sig verðskulda. Og Bryndís var niðurbrotin og ekki mönnum sinnandi næstu dægrin. Það er svo umhugsunarefni, að fyrr en varði voru gestirnir á bak og burt með allt sitt hafurtask, eins og aldrei hefði staðið til að gista yfir helgina. Innrásinni var lokið. En stóðu gestir okkar einir að verki? Eða stóðu aðrir að baki? Þeirri spurningu er svarað í næstu grein.“

Grein Jóns Baldvins í heild sinni

Sjá einnig: Bryndísi Schram var mikið niðri fyrir:„Þá hefði það verið í fyrsta skipti sem maðurinn minn hefði auðmýkt mig með því að snerta rassinn á ókunnugri konu“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“