fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Pressan

„Við getum farið að búa okkur undir þetta“ segir sérfræðingur

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 16. ágúst 2021 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það gæti farið svo að evrópska hitametið hafi fallið í síðustu viku þegar hitinn mældist 48,8 stig í Syracuse á Sikiley. Þess utan gæti hærri hiti en það mælst í þessari viku en öflug hitabylgja liggur nú yfir Íberíuskaga. Peter Stott, loftslagsfræðingur hjá bresku veðurstofunni, segir að Evrópubúar verði að búa sig undir að í framtíðinni geti hitinn farið yfir 50 stig.

Hitamælingin í Syracuse hefur ekki enn verið staðfest af Alþjóðaveðurfræðistofnunni en óháð því þá segir Stott að mælingin sýni í hvaða átt stefni varðandi hita í álfunni. „Líkurnar á að við sjá öfgahita á hverju sumri eru orðnar ansi miklar,“ segir hann.

„Við getum ekki sagt nákvæmlega hvenær það mun gerast en það mun líklegast gerast við Miðjarðarhafið þar sem áhrif heits lofts frá Norður-Afríku eru mest,“ segir hann.

Núverandi hitamet, sem hefur verið staðfest, er frá 1977 en þá mældust 48 stig í Grikklandi. Stott segir að nýjar greiningar sýni að vegna áhrifa loftslagsbreytinganna sé nú fimm sinnum líklegra að hitamet falli en áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísland upp um eitt sæti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf
Pressan
Fyrir 2 dögum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Upprættu satanískan barnaníðshring – „Þetta efni var sérstaklega skelfilegt“

Upprættu satanískan barnaníðshring – „Þetta efni var sérstaklega skelfilegt“
Pressan
Fyrir 6 dögum

29 ára ballerína slær frægum milljarðamæringum við – Hætti að dansa og tók mikla áhættu

29 ára ballerína slær frægum milljarðamæringum við – Hætti að dansa og tók mikla áhættu