fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Íslendingar í aðalhlutverkum í erlendum morðmálum – Ljúfur og indæll Íslendingur drap ástsælan útvarpsmann með óvenjulegu morðvopni

Jón Þór Stefánsson
Laugardaginn 7. ágúst 2021 08:00

Samsett mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undanfarin misseri hafa erlend morðmál þar sem Íslendingar leika stór hlutverk verið áberandi í fjölmiðlum. Þónokkur dæmi eru um Íslendinga sem annað hvort eru grunaðir um morð, eða hafa hreinlega verið dæmdir fyrir slíkan verknað á erlendri grundu. Síðustu vikur hefur DV fjallað um mál Daníels Gunnarssonar og Guðmundar Freys Magnússonar, sem báðir eru grunaðir um hrottaleg morð, annars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar á Spáni.

Í ljósi þess hve mörg mál sem þessi eru til ákvað DV að taka saman Íslendinga sem eru grunaðir um, eða hafa verið dæmdir fyrir morð erlendis á síðustu árum. Umfjöllunin er í tveimur hlutum og þetta er fyrri hlutinn. Sá seinni mun birtast á morgun, sunnudag.

Sjá einnig: Fjölskylduharmleikur, aflimað lík og skotárás

Sambýlismaður móðurinnar stunginn ítrekað

Um síðustu helgi fjallaði DV um mál Guðmundar Freys Magnússonar sem er ákærður fyrir að myrða sambýlismann móður sinnar, fyrir innbrot og fyrir að hóta móður sinni lífláti. Atvikið sem um ræðir átti sér stað á Spáni í janúar í fyrra.

Samkvæmt dómsskjölum sem DV hefur undir höndum á Guðmundur að hafa klifrað yfir háan vegg til að komast inn á lóð móðurinnar. Þar hafi hann sett á sig hanska og tekið hníf sem var í garði hennar. Talið er að hann hafi farið á staðinn í þeim tilgangi að verða sambýlismanninum að bana.

Sambýlismaðurinn á að hafa orðið var við Guðmund í garðinum og ákveðið að athuga hvað hann heyrði. Þá hafi Guðmundur kastað gaskút í manninn og svo stokkið á hann og stungið ítrekað, eða í allt að 21 skipti, með hnífnum. Þegar hinn látni féll í jörðina hélt Guðmundur áfram að stinga hann. Móðirin er sögð hafa í kjölfarið reynt að stöðva Guðmund sem á þá að hafa hótað henni lífláti. „Ég drep þig!“ á hann að hafa sagt.

Guðmundur varð fertugur í fyrra og hefur ítrekað komist í kast við lög hér á landi. Fékk hann meðal annars þriggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir íkveikju þar sem kona og börn voru hætt komin.

Grunaður um morð en segir að um sjálfsvíg sé að ræða

Í apríl í fyrra var greint frá því að Stefán Phillip Gíslason sæti í gæsluvarðhaldi í Flórída, grunaður um að hafa orðið Dillon Shanks að bana. Lík hans fannst í heimahúsi og voru skotsár á því.

Stefán er sagður hafa hringt í lögregluna og tjáð henni að Dillon Shanks hefði framið sjálfsvíg. Vegna vitnisburðar tveggja aðila taldi lögregla hins vegar að svo hafi ekki verið. Réttað verður í máli Stefáns í haust.

Stefán fæddist á íslandi árið 1991, en sama ár flutti hann ásamt foreldrum sínum til Bandaríkjanna, en þar hefur hann búið allar götur síðan.

Drap ástsælan útvarpsmann með pylsuhníf: Kom ættingjunum í opna skjöldu

Ámundi Jóhannsson var dæmdur í ellefu ára fangelsi árið 2014 fyrir morð sem hann framdi í Valle í Noregi árið áður. Fórnarlamb hans var ástsæll útvarpsmaður þar í landi og hét Helge Dahle.

Helge og Ámundi voru í samkvæmi kvöldið sem glæpurinn var framinn, meðal annars sátu þeir í tjaldi og hlógu saman. Hláturinn breyttist svo í grátur seinna um kvöldið. Ámundi drakk ansi mikið þetta kvöld og ætlaði sér að sanna að annar maður hefði níu líf og réðst á hann. Helge reyndi að koma til bjargar en það gekk ekki vel. Það endaði með því að Ámundi stakk Helge með pylsuhníf, þrisvar í bakið og einu sinni í brjóstkassann.

Fregnirnar komu ættingjum Ámunda í opna skjöldu enda er honum lýst sem ljúfum, indælum, góðum og jákvæðum manni af vandamönnum hans í umfjöllun DV um málið á sínum tíma.

Ámundi fluttist til Noregs tveggja ára gamall og hafði því búið þar í landi næstum því allt sitt líf er hann framdi voðaverkið, en alltaf verið í sterkum tengslum við Ísland. Hann hafði ekki komist í kast við lögin áður.

Íslenski morðinginn sem var ekki Íslendingur

Mögulega er mál Magna Böðvars Þorvaldssonar það sérkennilegasta á þessum lista, en hann var umfjöllunarefni heimildarþáttanna Flórídafanginn. Í lokaþættinum kom nefnilega í ljós að Magni væri ekki Íslendingur, heldur var það hluti af stórum lygavef hans. Raunverulegt nafn hans var Johnny Wayne Johnson.

Árið 2012 var Sherry Prather myrt í Flórídafylki Bandaríkjanna og seinna sama ár fannst líkið illa leikið úti í skógi. Ástæðan fyrir þessum verknaði er óljóst en móðir fórnarlambsins sagði á sínum tíma: „Hann hefur sagt svo margar mismunandi sögur að yfirvöld vita ekki enn hvaða útskýring er sú rétta. Ég tel að hann hafi ætlað að myrða einhvern þetta kvöld og hún varð fyrir valinu.“

Johnny Wayne var ekki handtekinn fyrr en árið 2016 þegar hann játaði að hafa framið morðið, en þá komst málið í íslenska fjölmiðla. Þá var því haldið fram að hann héti Magni og væri frá Keflavík.

Sjónvarpsþáttur Kjartans Atla Kjartanssonar opinberaði svo að Johnny Wayne væri ekki íslenskur, hefði eflaust aldrei farið út fyrir Bandaríkin og ætti líklega ekki einu sinni vegabréf.

Hægt er að lesa seinni hluta umfjölluninar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Heiða Björg keypti áfengi á kostnað borgarinnar

Heiða Björg keypti áfengi á kostnað borgarinnar
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Gróðrarstöðin Mörkin fær að lifa áfram að hluta

Gróðrarstöðin Mörkin fær að lifa áfram að hluta